Flýtilyklar
Strandblak á Íslandi
Nýr strandblakvefur hefur verið opnaður. Allar upplýsingar um strandblak má finna á www.strandblak.is
Reglur í strandblaki
Þetta er stytt útgáfa af reglum Alþjóðablaksambandsins fyrir strandblak. Reglur þessar eru þær sem eru öðruvísi frá reglum úr inniblakinu. Reglurnar eru að finna á heimasíðu FIVB.
1. Völlurinn
Völlurinn er 16 x 8 metrar.
Ytri línur vallarins skulu vera merktar með 5cm breiðu bandi í áberandi lit.
Mið- og sóknarlínur eru ekki merktar.
Uppgjafarsvæðið er fyrir aftan allan völlinn.
Sandurinn á að vera fínkornóttur og minnst 30cm á dýpt.
Æskilegt er að í kringum völlinn sé 3ja metra autt svæði.
2. Netið
Netið á að vera 1 m x 8,5 m, helst með með borðum að ofan og neðan.
Í keppnum í meistaraflokki á að nota antennur.
Hæðin fyrir karla er 243 cm og 224 cm fyrir konur.
(Aðrar hæðir eru ákveðnar eftir aðstæðum og flokkum)
Stangirnar sem halda netinu uppi eiga að vera fyrir utan völlinn.
3. Boltinn
Boltinn er í sömu stærð og þyngd og í inniblaki.
Loftþrýstingurinn í boltanum á að vera 0.175 til 0.225 kg/cm2.
Boltinn getur verið margskonar á litinn en helst á hann að vera skærgulur eða marglitur.
4. Fjöldi leikmanna
a) Meistaraflokkur: 2 leikmenn í liði
b) Aðrir flokkar: 4 leikmenn í hverju liðið
Í tveggja manna liðum eru ekki leyfðar skiptingar eða auka leikmenn. Í fjögurra manna liðum er leyfilegt að hafa einn skiptimann.
5. Búningar
Búningar eru frjálsir nema að þeir vekji ekki andúð né einhversskonar skaða.
6. Stig, unnar hrinur og leikur
Í sandblaki er spilað eftir “Running Score”, þ.e.a s. að stig er gefið við hverja unna uppgjöf. Það lið sem vinnur tvær hrinur vinnur leikinn. Fyrstu tvær hrinunnar eru spilaðar uppí 21 stig og ef til þriðju hrinu kemur er hún spiluð uppí 15 stig. Í báðum tilfellum skal lið vinna með minnst tveimur stigum, ekkert þak er á stigunum.
7. Staðsetningar og uppgjafarröð
Leikmenn hafa enga sérstaka staðsetningu á vellinum. Uppgjafarröð skal haldast þ.e.a.s. að skipt er um uppgjafarleikmann þegar liðið vinnur uppgjöfina til baka. Nákvæm skýrsla segir til um hver á að gefa næst upp.
8. Leikmannaskiptingar
a) Í tveggjamannaliðum: engin leikmannaskipti í leik eða mótum
b) Í fjögurramannaliðum: 2 leikmannskiptingar í fjögurramannaliðum (eða í hverju setti í 2 unnum hrinum).
9. Leikhlé og vallaskipti
Lið skipta um vallarhelming á 7 stiga fresti í fyrstu og annarri hrinu og við hver 5 stig í þriðju hrinu. Skiptingar gerast án seinkunar.
Hvert lið hefur rétt á einu 30 sek.. leikhléi í hverri hrinu.
Á milli hrina er gert hlé í 1 mínútu.
10. Yfirstig
Yfirstig er leyfilegt svo lengi sem það truflar ekki andstæðing.
Ekki er leyfilegt að stiga á eða undir línu við uppgjöf.
11. Leið boltans
Leið boltas á að vera á milli antenna eða hliðarbanda á netinu. Ekki er dæmt ef bolti snertir netið í uppgjöf.
Leyfilegt er að spila bolta sem farið hefur fyrir utan antennunar og sömu leið til baka og svo yfir á völl andstæðinga á milli antenna.
12. Net (snerting við netið í leik)
Ekki er leyfilegt að snerta netið á neinn eða annan hátt. Leikmaður sem snertir bolta (viljandi) í gegnum netið á meðan boltinn er í leik hjá andstæðingi skal refsað með rauðu korti. Snerti leikmaður boltann óviljandi er ekki dæmt á leikmann.
13. Boltameðferð
Ekki er leyfilegt að taka á móti fyrsta bolta (uppgjöf) með fingurslagi. Við móttöku á fyrsta bolta er tvíslag leyfilegt. Einnig má boltinn “hvíla í eitt augnablik” í fingurslagi á móti smassi.
Ekki er leyfilegt að lauma boltanum (fingurslag með annarri hendi). Spila má með fingurslagi yfir netið svo lengi sem boltinn fari beina leið út frá líkamanum (fram og aftur fyrir sig).
Aðeins eru leyfðar 3 snertingar. Hávörn telst sem snerting.
Leyfilegt er að leika/snerta boltann með öllum líkamanum.
Leit
Nýtt á vefnum
Heimsóknir
Samtals: 2557605







