Umgjörð og reglur yngriflokkamóta


Boltar

Uppfært 6. nóvember 2007.
Eftirfarandi boltar eru notaðir á Íslandsmótum BLÍ og sterklega er mælt með að félögin noti sömu tegundir bolta.

7. fl. Mikasa MGV 200.
6. fl. Mikasa MGV 200.
5. fl. Mikasa MGV 200.
4. fl. Notaðir venjulegir blakboltar, það er þó ljóst að nýjasti bolti Mikasa MVP 200 er sérstaklega mjúkur (Micfiber yfirlag) og hentugur fyrir yngri iðkendurna eins og 4. fl. Ókosturinn er að þessi bolti er nokkuð dýr. Þessi bolti er notaður sem keppnisbolti í 1. deildinni á Íslandi.

 

Flokkar aldursskipting

7. fl. 6-7 ára (1.-2.bekkur), blönduð lið leyfð.
6. fl. 8-9 ára (3.-4. bekkur), blönduð lið leyfð.
5. fl. 10-11ára (5.-6. bekkur) blönduð lið leyfð.
4. fl. 12-13 ára (7.-8. bekkur) blönduð lið ekki leyfð. (hægt að sækja um undanþágur til YFN BLÍ)
3. fl. 14-16 ára (9., 10.bekkur og 1. ár í framhaldi) blönduð lið ekki leyfð. (hægt að sækja um undanþágur til YFN BLÍ)
2. fl. 17-20 ára (2.-4. ár í framhaldsskóla)

 

Nethæð

5. – 6. fl. (krakkablak stig 0 – 5) nethæð 2,00 metrar
4. fl. nethæð 2,10 m
3. fl. kv. nethæð 2,18 m
3. fl. ka. nethæð 2,24 m
2. fl. ka. nethæð 2,43 m
2. fl. kv. nethæð 2,24 m

 

Stærð vallar

5. fl. (Krakkablak stig 0-2) Ytri línur badminton-vallar á breiddina og uppgjafar-línan í tvíliðaleik á lengdina.
Lengd: 5,30m
Breydd: 6,10m
Nethæð: 2.00m

5. fl. (Krakkablak stig 3) Ytri línur badminton-vallar á breiddina og uppgjafar-línan í tvíliðaleik á lengdina.
Lengd: 6,10m
Breydd: 6,10m
Nethæð: 2.00m

4. fl. (Krakkablak stig 3 eða 4) Ytri línur badminton-vallar á breiddina og uppgjafar-línan í tvíliðaleik lengdina
Lengd: 7,00 m (ATH Líma þarf þessa línu sérstaklega með t.d. einangrunarbandi 90 cm aftan við badmintonvöllinn).
Breydd: 6,10m
Nethæð: 2.10m

 

Reglur

5. fl. a - Krakkablak stig 3
5. fl. b. - Krakkablak stig 1 (Vonandi verður þessi flokkur komin á stig 2 eða 3 í apríl ár hvert).
4. fl. - Krakkablak stig 3 eða 4. nema nethæð 2,10m og endalína 7m frá neti í stað 6.10. Hvaða hvort hægt verður að spila bæði stigin í karla og kvennaflokki fer eftir þátttöku hverju sinni.
2.-3. fl. Venjulegar blakreglur, 6 leikmenn og stór völlur.

 

Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning