Flýtilyklar
37. Öldungamót BLÍ, Fjallabyggð og Dalvík - Trölli 2012
Reglugerð fyrir Öldungamót BLÍ
Kæru blak - öldungar, - öðlingar og ljúflingar Íslands.
Fyrir hönd bæjarfélaganna (Dalvíkur- og Fjallabyggðar) og blakklúbbanna á Tröllaskaga (Hyrnunnar, Súlunnar og Rimanna) boða ég til 37.Öldungamóts Blaksambands Íslands (BLÍ) sem haldið verður á Tröllaskaga (Siglufirði, Ólafsfirði og Dalvík) dagana 28.-30.apríl 2012. Spilað verður á 9 völlum:
3 völlum í íþróttamiðstöð hvers bæjarkjarna þar sem sundlaug og þreksalur er í sömu byggingu.
Mótið hefur hlotið nafnið Trölli 2012.
Heimasíða mótsins er komin í gang en þar munu allar fréttir og upplýsingar varðandi mótið koma inn jafnt og þétt. Slóðin á heimasíðuna er:
www.trolli2012.is
Hægt er að senda blaköldungi tölvupóst ef það eru einhverjar spurningar varðandi mótið en hann er með netfangið: oldungur@blak.is Gisting verður í boði fyrir keppendur í Grunnskóla Fjallabyggðar á Siglufirði. Ef keppnislið eða keppendur vantar upplýsingar um gistinguna í grunnskólanum eða gistimöguleika almennt þá er hægt að senda tölvupóst á eftirfarandi netfang: lindagylfa@simnet.is
Skráning á mótið verður á www.blak.is og verður opnað fyrir skráningu 01.mars 2012 og henni mun síðan ljúka 28.mars 2012.
Mótsgjaldið er 34.000.- pr þátttökulið en það er 2.000.- lækkun frá síðasta móti. Ástæða lækkunarinnar er m.a. sú að bæjarfélögin munu bjóða keppendum í sund alla þrjá keppnisdagana.
Lokahófið mun fara fram mánudagskvöldið 30.apríl og verður það í íþróttamiðstöðinni á Siglufirði. Forsala miða mun hefjast um miðjan 15. febrúar 2012 og ljúka 4. apríl. Verð á lokahófið er 6.500.- í forsölu.
Seldir verða 700 miðar á lokahófið svo það er um að gera að næla sér í miða sem fyrst.
Mótið er opið öllum sem uppfylla 2.grein fyrsta kafla reglugerðar um Öldungamót BLÍ sem hljóðar svo:
Þátttaka í Öldungamóti BLÍ er heimil öllum félögum og hópum, sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
a) Vera skráður iðkandi í blaki hjá félagi innan ÍSÍ.
b) Vera á keppnisárinu 30 ára eða eldri í öldungadeildum, 40 ára eða eldri í öðlingadeildum og 50 ára eða eldri í ljúflingadeildum.
c) Hver leikmaður leiki aðeins í einni deild og með einu liði. Öldungur getur gefið félagi leyfi til að færa liðsmann á milli deilda ef meiðsli koma upp í liði. Það gildir þó aðeins innan sama félags og aldrei úr efri deildum í neðri deildir.
d) Félagaskipti þarf ekki að tilkynna.
Skráning á mótið verður á blak.is og verður opnað fyrir skráningu mjög fljótlega.
Öldungur er með netfangið oldungur@blak.is
Með kærri blakkveðju,
Óskar Þórðarson
Öldungur 2012
Leit
Nýtt á vefnum
Heimsóknir
Samtals: 2570103







