Flýtilyklar
35. Öldungamót BLÍ í Mosfellsbć - Mosöld 2010
Kæru blak - öldungar, - öðlingar og ljúflingar Íslands.
Fyrir hönd Mosfellsbæjar og blakdeildar Aftureldingar boða ég til 35.Öldungamóts Blaksambands Íslands sem haldið verður í Mosfellsbæ dagana 13.-15. maí 2010. Spilað verður á 9 völlum - öllum í sama húsi í íþróttamiðstöðinni að Varmá þar sem einnig er sundlaug í sömu byggingu.
Mótið hefur hlotið nafnið MOSÖLD 2010.
Mótið er opið öllum sem uppfylla 2.grein fyrsta kafla reglugerðar um Öldungamót BLÍ sem hljóðar svo:
Þátttaka í Öldungamóti BLÍ er heimil öllum félögum og hópum, sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
• Vera á keppnisárinu 30 ára eða eldri í öldungadeildum,
• 40 ára eða eldri í öðlingadeildum og 50 ára og eldri í
ljúflingadeildum.
• Heimilt er að færa aldurstakmark í ljúflingadeildum niður í 45 ár
fyrir 2 leikmenn í liði.
• Hver leikmaður leiki aðeins í einni deild.
• Félagaskipti þarf ekki að tilkynna.
Skráning á mótið verður á blak.is og verður opnað fyrir skráningu upp úr miðjum febrúar.
Öldungur er með netfangið oldungur@blak.is
Heimasíða mótsins verður opnuð upp úr 20.janúar 2010 og er slóðin: mosold.is Þar munu allar upplýsingar sem tengjast mótinu á einn eða annan hátt koma fram ásamt styrktaraðilum mótsins en undirbúningur er kominn á fullt skrið.
Gisting verður í boði fyrir keppendur í Varmáskóla sem er við hlið íþróttahússins og verður boðið upp á morgunmat í skólanum.
Einnig verða fjölmörg einkaheimili í boði fyrir þá sem það vilja. Allar
þessar upplýsingar munu koma fram á heimasíðu mótsins ásamt á blak.is síðunni.
Það er von okkar að við sjáum sem flesta blakara í Mosfellsbænum þessa helgi og býð ég ykkur hjartanlega velkomin.
Ef þið vitið af einhverjum blakfélögum eða hópum sem ekki fá þetta boð þá megið þið gjarnan senda það áfram á viðkomandi.
Með blakkveðjum úr Mosfellsbænum.
Guðrún K Einarsdóttir (Gunna Stína)
Öldungur 2010
Leit
Nýtt á vefnum
Heimsóknir
Samtals: 1035534





