Flýtilyklar
Norðurlandamót undir 17 ára og undir 19 ára 2007
Undanfarin ár hefur verið valinn hópur krakka á aldrinum 13-16 ára til að taka þátt í hæfileikabúðum BLÍ. Búðirnar hafa verið nýttar að hluta til að efla áhuga á blakíþróttinni og að hluta sem undirbúningur og forval fyrir þátttöku í unglingalandsliðum Íslands í blaki.
BLÍ sendi í fyrra þrjú lið á Norðurlandamót unglingalandsliða, U-17 kvenna og karla til Falköping í Svíþjóð en U19 stúlkna fór til Ikast í Danmörku. Í ár fara fjögur unglingalandslið á Norðurlandamót. U19 hópurinn fer til Noregs í kringum 20. september en U17 ára liðin fara til Finnlands í kringum 6. september.
* Unglingar fæddir 1993-1990 (hugsað fyrir U -17 landsliðið 2007 - við fáum undanþágu fyrir leikmenn fædda 1990)
* Unglingar fæddir 1989-1987 (hugsað fyrir U-19 landsliðin árið 2007.
Í sumar fer fram lokaval fyrir U-17 Norðurlandamótið í Svíþjóð. Haldnar verða í það minnsta 3 – 4 æfingabúðir á tímabilinu júlí til september í sumar til undirbúnings ferðarinnar.
Þjálfarar unglingalandsliðanna
Stjórn BLÍ hefur ákveðið að leita enn á ný til Magnúsar Aðalsteinssonar þjálfara VBK Tromsö og færeysku A-landsliðanna. Magnús mun þjálfa stúlknalandsliðin U17 og U19. Marek Bernat, landsliðsþjálfari kvennalandsliðsins og aðalþjálfari KA á Akureyri hefur verið ráðinn þjálfari U17 og U19 drengja í sumar. Hann mun stýra æfingum ásamt aðstoðarfólki BLÍ. Emil Gunnarsson, Viðar Gylfason og Fríða Sigurðardóttir munu vera til aðstoðar í sumar við æfingar unglingalandsliðanna en unglingalandsliðsnefndin sér um að vel sé hugsað um krakkana þess á milli. Formaður hennar er Ásta Sigrún Gylfadóttir, astasg@simnet.is .

Leit
Nýtt á vefnum
Heimsóknir
Í dag: 403
Samtals: 1186164
Samtals: 1186164
Mótamál
Á næstunni
4.09.2010
Afreksbúðir BLÍ
2.10.2010
Haustmót BLÍ á Akranesi
10.10.2010
S-V landsmót fyrir 3.-6. flokk að Varmá í Mosfellsbæ
30.10.2010
3. deildar mót á Ísafirði
6.11.2010