Mótafyrirkomulag - Íslandsmót yngriflokka

Íslandsmót yngriflokka eru tvö yfir veturinn. Fyrra mótinu hefur verið skipt upp þannig að yngri hópurinn keppir á sama móti og sá eldri á öðru móti á öðrum dagsetningum. Mótin fyrir veturinn 2009-2010 verða sem hér segir:

Yngriflokkamót BLÍ, 4. og 5. flokkur, haldið í Neskaupstað helgina 7.-8. Nóvember 2009.
Yngriflokkamót BLÍ, 2. og 3. flokkur, haldið í Neskaupstað helgina 13.-14. nóvember 2009.

Yngriflokkamót BLÍ, allir flokkar, haldið í Kópavogi  helgina 16.-18. apríl 2010.

Bikarmót 2. og 3. flokks verður haldið í Kópavogi 29.-30. janúar 2010.

Landshlutamót

(janúar- mars)

Æskilegt væri ef hægt væri að koma á fót landshlutamótum sem gætu farið fram mánuðina janúar – mars þegar hlé er á Íslandsmótinu. Þessi mót verða haldin af frumkvæði félaga í hverjum landshluta og er framkvæmd þeirra algerlega á þeirra ábyrgð. Félög geta nýtt sér vefkeyrt mótakerfi á www.krakkablak.bli.is.

Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning