Flýtilyklar
Lög og reglugerðir
Reglugerð um frestanir leikja
1. gr.
Leikir samkvæmt mótaskrá mótanefndar BLÍ skulu leiknir á þeim stað og tíma sem þar frá greinir.
2. gr.
Leikir skulu almennt tilkynntir með mánaðar fyrirvara, en 14 dagar teljast réttir ef svo ber undir.
3. gr.
Mótanefnd er heimilt að breyta ásettum leikjum og þurfa þá a.m.k. 14 dagar að vera í leik. Ef skemmra er í leik þarf samþykki beggja liða til breytingarinnar, en ef skemmra en 7 sólarhringar eru til leiks er engin heimild til leikbreytingar nema samkvæmt 4. og 5. grein.
4. gr.
Leikur fellur af mótaskrá ef um lokaðar leiðir er að ræða, þannig að lið kemst ekki til leiks vegna veðurs, ófærðar eða annarra ófyrirsjáanlegra ástæðna, nema ákvæði 6. gr. sé beitt. Þegar um flug er að ræða skal miðað við flugleið samdægurs. Sama gildir um bílveg eða sjóveg, þegar slíkri ferð má ljúka m.t.t. árstíma á augljósum tíma. Flugleið telst fær ef flogið er áætlunarflug á þeim tíma sem lið hyggst fara á og ekki er um frídag að ræða, annars telst leið fær ef flogið er áætlunarflug á leikdag. Lið skulu panta far með að minnsta kosti 14 daga fyrirvara, sé þess kostur.
5. gr.
Ef um veikindi er að ræða, hvort heldur er leikmanna eða starfsmanna er leik ekki frestað nema til afbrigða megi telja. Í slíkum tilfellum skulu formaður og varaformaður BLÍ eða staðgenglar þeirra hverju sinni skera úr um frestun samdægurs.
6. gr.
Mótanefnd hefur heimild til að breyta leiktíma innan sömu leikhelgar þegar um tímabundna lokun leiða er að ræða sbr. 4. gr.. Og að öðrum óviðráðanlegum orsökum.
7. gr.
Mótaskrá er hvers konar tilkynning um leikdaga, stað og tíma sem forráðamenn liða hafa undir eðlilegum kringumstæðum full tækifæri til að kynna sér.
8. gr.
Mótanefnd skal innan 7 sólarhringa frá frestuðum leik koma honum að nýju fyrir á mótaskrá sbr. 2. gr. nema bæði lið samþykki aðra tilhögun.
9. gr.
Mæti lið ekki til leiks í 1. deild eða í bikarkeppni BLÍ skal viðkomandi lið tapa leiknum 3-0, (25-0, 25-0, 25-0). Jafnframt skal sama lið vera sektað um krónur 80.000,- Verði sektin ekki greidd innan þeirra tímamarka sem stjórn BLÍ ákveður getur hún útilokað umrætt lið frá allri keppni á vegum BLÍ þar til skuldin hefur verið greidd eða um hana samið. Ákvæði þetta gildir á milli keppnistímabila.
Mæti lið í neðri deildum ekki til leiks tapast leikur þess 3-0, (25-0, 25-0, 25-0), liðið verður ekki beitt fjársektum.
Reglugerð um félagaskipti
1. gr.
Leiktíð er frá 15. september til 15. maí
2. gr.
Þegar leikmaður skiptir um félag skal hann leggja fram fullgild félagaskipti, þ.e. ritaða yfirlýsingu um félagaskipti sín, skriflegt samþykki gamla félagsins sem jafnframt vottar að leikmaður sé skuldlaus við það, og staðfestingargjald kr. 3,000 kr. sem greiðist til BLÍ.
3.gr.
Fullgild félagaskipti, móttekin á skrifstofu BLÍ, frá 15. maí til 15. október ár hvert eða, taka gildi um leið og stjórn BLÍ eða framkvæmdastjóri hefur samþykkt þau sbr. starfsreglur vegna félagaskipta.
4.gr.
Hafi leikmaður ekki leikið með félagi sínu í eitt ár, telst hann hlutgengur með nýju félagi um leið og fullgild félagaskipti hafa verið móttekin og samþykkt af stjórn BLÍ eða framkvæmdastjóra
5.gr.
Félagaskipti sem lögð eru fram eftir 15. október ár hvert taka gildi tveimur vikum eftir móttöku þeirra, að því tilskyldu að stjórn BLÍ eða framkvæmdastjóri hafi samþykkt þau. Félagaskipti sem lögð eru fram eftir 15. febrúar ár hvert taka ekki gildi fyrr en 15. maí um leið og stjórn BLÍ eða framkvæmdastjóri hefur samþykkt þau sbr. starfsreglur vegna félagaskipta.
6.gr.
Leikmanni er aðeins heimilt að skipta um félag tvisvar á hverri leiktíð og jafnframt er leikmaður einungis gjaldgengur með einu liði í Bikarkeppni BLÍ á hverri leiktíð.
Starfsreglur stjórnar vegna félagaskipta
1. gr.
Stjórn BLÍ skal ávallt fjalla um og samþykkja ef unnt er, móttöku yfirlýsingar um félagaskipti á fyrsta fundi eftir að yfirlýsingin er móttekin. Ef líða þarf einn eða tveir mánuðir frá yfirlýsingu um félagaskipti þar til leikmaður telst löglegur með nýju félagi, er sá tími talinn frá samþykktri móttöku yfirlýsingar og staðfestingargjalds.
2. gr.
Móttaka skjala vegna félagaskipta telst gild ef framkvæmdastjóri eða stjórnarmaður vottar hana skriflega, og lætur tvo aðila, innan stjórnar eða framkvæmdastjóra, vita daginn sem móttekið er.
3. gr.
Félagaskipti taka ekki gildi fyrr en yfirlýsing um skiptin, staðfestingargjald og samþykki gamla félagsins hafa verið móttekin.
4. gr.
Stjórn BLÍ eða framkvæmdastjóra er heimilt að samþykkja félagaskipti ef yfirlýsing leikmanns og staðfestingargjald hafa verið móttekin skv. 2. gr. og móttaka samþykkt, með þeim fyrirvara að samþykki gamla félagsins sé móttekið samkvæmt reglum um móttöku skjala skv. 2. gr. starfsgreinar.
5. gr.
Berist samþykki gamla félagsins ekki fyrr en eftir að tilskilinn tími til félagaskipta er liðinn (1 mánuður eða 2 mánuðir), er leikmaður löglegur daginn eftir að skjalið hefur verið móttekið skv. 2. gr. Sé skeyti sent BLÍ, gilda sömu reglur um móttöku þess og um móttöku annarra skjala.
Reglugerð fyrir bikarkeppni Blaksambands Íslands
1. gr.
Í 1. umferð keppa lið í 2. deild og utandeildalið og þá eftir landshlutum. Ef einungis eitt lið skráir sig til keppni í landsfjórðungnum þá fer það sjálfkrafa í 2. umferð.
2. gr.
Í 2. umferð koma 1. deildarliðin inn í keppnina og skulu öll liðin sett í einn pott og dregið. Utandeildaliðin og 2. deildarliðin eiga heimaleik í 2. umferð mæti þau 1. deildarliði. Annars á það lið sem á undan er dregið heimaleik. Lið sem flyst sjálfkrafa úr 1. umferð skulu dregin fyrst úr pottinum í 2. umferð.
3. gr.
Stjórn BLÍ ákveður leikstað úrslitaleiks fyrir fyrstu umferð keppninnar.
4. gr.
BLÍ skal sjá um framkvæmd leiksins.
Reglugerð um merki BLÍ
Reglugerð um heiðursmerki BLÍ
1. Heiðursmerki BLÍ er merki sambandsins úr gulli.
2. Merkið skal veitt fyrir framúrskarandi störf í þágu sambandsins og blakíþróttarinnar.
3. Stjórn sambandsins ákveður hverjum skuli veita merkið, en eigi skulu veitingar vera fleiri en tvær á ári, nema sérstaklega standi á.
4. Heimilt er að veita erlendum ríkissborgurum merkið.
5. Reglugerð þessari verður ekki breytt nema á reglulegu ársþingi BLÍ.
6. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Reglugerð um starfsmerki BLÍ
1. Starfsmerki BLÍ er merki úr silfri.
2. Merkið skal veita fyrir vel unnin störf innan blakhreyfingarinnar og fyrir að hafa leikið 50 A-landsleiki.
3. Stjórn BLÍ ákveður hverjum skuli veita merkið.
4. Reglugerð þessari verður ekki breytt nema á ársþingi BLÍ.
5. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Reglugerð um nýliðamerki BLÍ
1. Nýliðamerki BLÍ er merki úr bronsi
2. Merkið skal veita leikmanni fyrir að leika sinn fyrsta A-landsleik.
3. Reglugerð þessari verður ekki breytt nema á ársþingi BLÍ.
4. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Dómarasjóður
1. gr.
Nafn sjóðsins er Dómarasjóður BLÍ.
2. gr.
Sjóðurinn skal vera í umsjón gjaldkera BLÍ, en sérgreindur í ársreikningum og á sérreikningi.
3. gr.
Sjóðurinn aflar tekna sinna með gjaldtöku af leikjum á vegum BLÍ, og skal sú upphæð ákveðin á ársþingi BLÍ hverju sinni.
4. gr.
Hlutverk sjóðsins er:
1) að styrkja dómara til frekara náms.
2) Að aðstoða dómara til utanfara á vegum BLÍ
3) að stuðla að fjölgun dómara.
4) að láta annað það gott of sér leiða er kemur sér vel fyrir dómgæslu og dómarastéttina.
5. gr.
Ef óskað er eftir úthlutun úr sjóðnum skal senda skriflega beiðni þar að lútandi til Dómaranefndar BLÍ. Sjóðurinn er öllum opinn.
6. gr.
Úthlutun úr sjóðnum er alfarið í höndum dómaranefndar BLÍ og þarf fulla samstöðu innan nefndarinnar fyrir úthlutunum.
7. gr.
Stjórn BLÍ sker úr öllum ágreiningsmálum sem rísa kunna út of reglum þessum.
Reglugerð fyrir deildarkeppni og úrslitakeppni BLÍ
Reglugerð fyrir deildarkeppni og úrslitakeppni BLÍ í meistaraflokkum karla og kvenna
1. gr.
Leikið skal í 1. og 2. deild.
2. gr.
Í fyrstu deild skal leikin fjórföld umferð til deildarmeistaratitils. Að deildarkeppninni lokinni skal leikið til Íslandsmeistaratitils með þátttöku fjögurra efstu liðanna á eftirfarandi hátt: Lið nr. 1 leikur við lið nr. 4 og lið nr. 2 leikur við lið nr. 3. Leikið skal þar til annað liðið hefur unnið tvo leiki. Það 1ið sem verður ofar í deildarkeppninni fær fyrsta heimaleik og þriðja leik heima komi til hans.
Sigurvegararnir úr þessum viðureignum leika svo til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn, leikið skal þar til annað liðið hefur unnið tvo leiki. Það 1ið sem ofar varð í deildarkeppninni fær fyrsta og þriðja leik heima komi til hans. Í úrslitaleikjunum skulu liðin skipta með sér ferðakostnaði komi til þriðja leiks milli liðanna. Heimaliðið heldur eftir öllum tekjum sem inn koma á leikjunum.
3. gr.
Rétt til þátttöku í 1. deild karla og kvenna eiga þau lið sem þar léku síðasta keppnistímabil og féllu ekki í 2. deild. Einnig þau lið sem unnu sig upp úr 2. deild skv. 9.gr..
4. gr.
Heimilt er að selja nafn deildarinnar.
5. gr.
Hrinuhlutfall ræður röð liða ef tvö eða fleiri eru með jafn mörg stig. Ef þetta dugar ekki ræður stigaskor röð liða og því næst hlutkesti. Hrinuhlutfall skal fundið út með því að deila annum hrinum með töpuðum hrinum. Skorhlutfall skal fundið út með því að deila skoruðum stigum með töpuðum stigum.
6. gr.
2. deild skal leikin í tveimur riðlum eftir landshlutum, ef næg þátttaka fæst. Minnst skulu vera fjögur lið í riðli.
7. gr.
Leikin skal tvöföld eða fjórföld umferð, eftir fjölda liða.
8. gr.
B liðum félaga skal heimiluð þátttaka í 2. deild. 7 leikjahæstu leikmenn A liða mega ekki leika með B liðum.
9. gr.
Tvö efstu liðin í hvorum riðli 2. deildar leika til úrslita í 2. deild. Leikið skal heima og heiman. Hrinuhlutfall ræður röð liða. Sigurvegarinn úr þessari keppni telst Íslandsmeistari í 2. deild og leikur um laust sæti í 1. deild næsta keppnistímabil við neðsta liðið í 1. deild. Ef sigurvegari 2. deildar er B 1ið félags í I . deild þá skal það A lið sem varð efst í 2. deild leika um sætið.
10. gr.
Fyrir hverja unna hrinu í deildarkeppni 1. og 2. deildar og úrslitakeppni 2 deildar skal gefa 1 stig. Leikur sem fer t d 3 - 2 gefur sigurvegaranum 3 stig en tapliðinu 2 stig.
Ákvæði frá dómaranefnd.
Til að öðlast þátttökurétt í 1 deild karla og kvenna þarf lið að tilnefna 2 virka dómara til að dæma fyrir þess hönd á keppnistímabilinu (helst annar landsdómari). Lið í 2. deild karla og kvenna Þurfa að tilnefna 1 virkan dómara.
Dómaranefnd er heimilt að veita undanþágu ef til vandræða horfir en dómaranefnd skal a.m.k. halda eitt dómaranámskeið á ári.
Útvegi lið ekki þá dómara sem þingsamþykkt segir til um á keppnistímabilinu skal liðið sektað um kr 10 000 fvrir hvern dómara sem uppá vantar.
Því liði sem á heimaleik ber skylda til að hafa samband við þá dómara sem dæma eiga þremur dögum áður en leikur fer fram. Ef dómari getur ekki dæmt ber að snúa sér til dómara. Dómarar geta skipt við aðra dómara. Héraðsdómari má ekki vera aðaldómari í 1. deild karla.
Aðaldómari ber ábyrgð á því að leikskýrsla berist til skrifstofu BLÍ og skal sjá til þess að hún berist í síðasta lagi innan þriggja daga.
Leiðbeiningar um umsjón heimaleikja
Verði heimalið til þess að leik seinki eða framkvæmd hans misfarist skal dómari gera um það athugasemd í leikskýrslu og skal BLÍ sekta viðkomandi lið um kr. 3.000.-
Undir þetta fellur eftirfarandi:
1. Net skal vera uppsett og frágengið 20. mín. fyrir leik
2. Netspírur, net og stigatöflur skulu vera í lagi og skv. reglum þar að lútandi.
3. Ritari, töflumaður, stigaritari og boltafólk skal vera tilbúið til starfa 15. mínútur fyrir leik. Athygli er vakin á því að stigaritun og ritun leikskýrslu má helst ekki vera innt af hendi af sama aðila. Mælst er til þess að boltafólk noti innanhússkó og ræður
við verkið, ekki of ungir krakkar!!
4. 3 keppnisboltar með réttum loftþrýstingi skulu vera til staðar 5. mínútur fyrir leik.
5. Tónlist skal vera til staðar um leið og leikvöllur er laus til undirbúnings leiks.
6. Eftir leik skal hringja inn úrslit á textavarp og skrá úrslitin í úrslitabók íþróttahússins og koma þeim í tölvupósti til BLÍ. Það er oft hringt í íþróttahúsin nokkru eftir að leik er lokið og allir eru farnir.
7. Stigaritari skal undirrita stigaskorblað undantekningarlaust. Mælst er til þess að sami aðili sjá helst um stigatalninguna, slíkt er líklegra til að tryggja samkvæmni.
Heimild til mótanefndar
Mótanefnd BLÍ er heimilt að breyta út frá reglugerð um fyrirkomulag Íslandsmóta ef ekki fæst næg þátttaka til að fullnægja skilyrðum reglugerðarinnar.
Reglugerð fyrir haustmót BLÍ.
1. gr.
Mótið heitir Haustmót BLÍ og skal haldið í September ár hvert.
2. gr.
Rétt til þátttöku eiga öll félög og héraðssambönd innan ÍSÍ svo og önnur 1ið sem framkvæmdaraðili samþykkir.
3. gr.
Framkvæmdaraðili mótsins er félag eða héraðssamband innan ÍSÍ. Sækja skal um rétt til að halda mótið til BLÍ fyrir 1. September ár hvert. Ekki er nauðsynlegt að sami aðili sjái um framkvæmd mótsins 6æði í karla- og kvennaflokki. Heimilt er að ráðstafa mótinu ár fram í tímann.
4. gr.
Framkvæmdaraðili ákveður tilhögun keppninnar, þátttökugjöld og verðlaun. Tilhögun skal liggja fyrir um leið og þátttökugjalda er óskað svo og verðlaun fyrir mótið.
5. gr.
Ef engar umsóknir berast BLÍ um að halda mótið má BLÍ gangast fyrir mótinu ella falli það þá niður það ár.
6. gr.
BLÍ er heimilt að taka gjald fyrir mótsréttinn í því formi sem samkomulag næst um.
Reglugerð um vormót BLÍ
Reglugerð fyrir Vormót Blaksambands Íslands
1. gr.
Mótið heitir Vormót BLÍ og skal haldið eftir 15. apríl ár hvert.
2. gr.
Rétt til þátttöku eiga öll félög og héraðssambönd innan ÍSÍ svo og önnur lið sem framkvæmdaraðili samþykkir.
3. gr.
Framkvæmdaraðili mótsins er félag eða héraðssamband innan ÍSÍ. Sækja skal um rétt til að halda mótið fyrir 1. mars ár hvert. Ekki er nauðsynlegt að sami aðili sjái um framkvæmd mótsins í karla- og kvennaflokki. Heimilt er að ráðstafa mótinu ár fram í tímann.
4. gr.
Framkvæmdaraðili ákveður tilhögun keppninnar, þátttökugjöld og verðlaun. Tilhögun skal liggja fyrir um leið og þátttökugjalda er óskað svo og verðlaun fyrir mótið.
5. gr
Ef engar umsóknir berast BLÍ um að halda mótið má BLÍ gangast fyrir mótinu ella falli það þá niður það ár.
6. gr.
BLÍ er heimilt að taka gjald fyrir mótsréttinn í því formi sem samkomulag næst um.
Reglugerð fyrir meistarakeppni BLÍ
Reglugerð fyrir Meistarakeppni Blaksambands Íslands
1. gr.
Þátttökurétt hafa Íslands- og Bikarmeistarar í mfl. karla og kvenna hverju sinni.
2. gr.
Hljóti lið Íslands- og Bikarmeistaratitil sama árið þá skal keppnin falla niður næsta keppnistímabil á eftir og Meistarabikarinn geymdur í vörslu þess félags þar til leikið verður á ný.
3. gr.
Vinni félag til Íslands og Bikarmeistaratitils sama árið þá skal það hljóta nafnbótina „Meistari meistaranna” og bera hana þar til nýir meistarar verða krýndir.
4. gr.
Um Meistarabikarinn gilda sömu reglur og reglugerð um bikara á vegum BLÍ segir til um.
5. gr.
Meistaraleikirnir skulu fara fram að hausti ár hvert og skal leikstaðurinn vera ákv. of stjórn BLÍ og þátttökuliðum.
6. gr.
Dómarakostnaður greiðist of BLÍ en ferðakostnaður skipist jafnt á milli þátttökuliða.
7. gr.
Aðgangseyrir skal fyrst ganga til greiðslu á húsaleigu og til greiðslu á öðrum tilfallandi kostnaði, nái endar ekki saman skal BLÍ bera kostnaðinn. Eftir að kostnaður hefur verið greiddur skal BLÍ fá 2/3 aðgangseyris en þátttökulið skipta með sér afgangi.
8. gr.
BLÍ getur setið eitt að auglýsingum að leiknum eða verið í samstarfi með þátttökuliðum. BLÍ hefur heimild til þess að selja þátttökuliðum auglýsingasvæði gegn þóknun sem samkomulag næst um.
9. gr.
BLÍ skal gefa Meistarabikarinn til keppninnar eða hafa forystu um að ná í styrktaraðila sem gerir slíkt. BLÍ skal sjá til þess að bikarinn sé verðugur verðlaunagripur, standi undir nafni og gefi metorðin sem harm á að standa fyrir vel til kynna.
10. gr.
BLÍ skal sjá um að auglýsa leikinn og kynna hann í fjölmiðlum ásamt því að bjóða útvöldum boðsgestum hverju sinni og stuðla þar með að aukinni kynningu á blakinu.
11. gr.
Meistarakeppnin skal fara fram ár hvert í mfl. karla og kvenna. Ef sama 1ið verður ekki Íslands- og Bikarmeistari.
12. gr.
Stjórn BLÍ er heimilt að ákveða leikform hverju sinni. Reglugerð varðandi auglýsingar á búningum og búnaði blakliða innan Blaksambands Íslands.
Reglugerð um auglýsingar á búningum.
1. gr.
Einstökum félögum innan BLÍ er heimilt að auglýsa vörutegundir eða þjónustu á búningum og búnaði leikmanna sinna samkvæmt eftirfarandi skilyrðum: Auglýsingin má aðeins varða vörutegundir og þjónustu. Hún má ekki ganga í berhögg við anda íþróttanna. Hvatningarorð eru óheimil.
2. gr.
Þá upphæð, sem félag hlýtur fyrir auglýsingu, má aðeins nota til starfsemi félagsins. Í engum tilvikum má sú upphæð eða hluti hennar greiðast leikmönnum eða leiðtogum. Stjórn BLÍ áskilur sér rétt til að fylgjast með því að þessari reglu sé fylgt, enda skulu tekjur of auglýsingum þessum koma greinilega fram í reikningum félagsins.
3. gr.
Ef reglur þessar eru brotnar, getur stjórn BLÍ dæmt félag til refsingar, vent því áminningu, ávítur eða sektað það, allt eftir eðli brotsins. Í mjög grófum eða endurteknum tilfellum skal úrskurða félag frá keppni.
Kosning í lið ársins
Reglugerð fyrir kosningu í lið ársins í karla og kvennaflokki ásamt dómara ársins og þjálfara ársins
1. gr.
Hvert lið í 1. deild skal tilnefna þrjá leikmenn um eftirfarandi stöður sem hlyti nafnbótina á árs- og uppskeruhátíð BLÍ ár hvert. Raða skal leikmönnum í röð, sá efsti fær 3 stig, næsti 2 stig og þriðji 1 stig. Þeir leikmenn sem fá flest stig teljast þannig réttkjörnir. Ekki má tilnefna leikmenn úr sínu liði.
*
Besti móttökumaður ársins
Frelsingi ársins
Uppspilari ársins
Besti leikmaður ársins
Efnilegasti leikmaður ársins
Í liði ársins eru að auki stigahæstu leikmenn úr stigatalningu í 1. deild.
Flest stig í hávörn
Flest stig í sókn
Flest stig úr uppgjöf
Stigahæsti leikmaður Íslandsmótsins
Að auki skal lið í 1. deild tilnefna tvo dómara ársins, 2 stig og 1 stig. Sá dómari sem fær flest stig telst þannig réttkjörinn dómari ársins.
Þjálfarar 1. deildarliðanna skulu tilnefna 1 þjálfara ársins í karlaflokki og 1 þjálfara ársins í kvennaflokki. Þjálfarar mega ekki tilnefna sjálfan sig.
2. gr.
Hvert lið sem leikur í úrslitakeppni í 2. deild skal tilnefna þrjá leikmenn um titilinn "besti leikmaður 2. deildar". Raða skal leikmönnum í röð, sá efsti fær 3 stig, næsti 2 stig og þriðji 1 stig. Þeir leikmenn sem fá flest stig teljast þannig réttkjörnir. Ekki má tilnefna leikmenn úr sínu liði. Tilkynnt verður um þetta á árs- og uppskeruhátíð BLÍ ár hvert.
Viðurlög við notkun ólöglegra leikmanna
1. gr.
Verði lið uppvíst að því að nota ólöglegan leikmann í leik skal liðið taps leiknum 3 - 0, (25-0, 25-0, 25-0).
2. gr.
Við ítrekuð brot skal liðið jafnframt dæmt í fjársektir.
3. gr.
Kærufrestur er 4 sólarhringar.
Starfsreglur Aganefndar Blaksambands Íslands
1. gr.
Aganefnd BLÍ skal skipuð 3 mönnum og einum til vara og sér stjórn BLÍ um tilnefningu þeirra.
2. gr
Verksvið aganefndar er að fjalla um og kveða upp úrskurði um brat leikmanna, þjálfara, aðstoðarmanna og forystumanna félaga, sem framin eru í keppni (leik) eða á keppnisstað. Aganefndin fjallar þó einungis um þau brot sem kærð eru til hennar sbr. 5 gr. 1. lið.
3. gr.
Úrskurði aganefndar verður ekki áfrýjað.
4. gr.
Munnlegur málflutningur er aðeins heimill þegar brot geta varðar við 3. og 4. tl. 5. gr. Þegar slíkt er heimilt skal aganefnd tilkynna aðilum fyrirtekt með 3 sólarhringa fyrirvara og skal aðili þá flytja vörn sína og á ekki kost á frekari frestun.
5. gr.
1) Öllum starfsmönnum leiks er heimilt að kæra, en dómari skal koma kærunni til aganefndar. Kæra er heimil geri leikmaður, þjálfari eða aðstoðarmenn bans eða forystumenn félags sig seka um:
a) að gagnrýna ákvarðanir dómara.
b) að viðhafa meiðandi, eða niðrandi ummæli um leikmenn, starfsmenn áhorfendur eða dómara.
c) aðra minniháttar óprúðmannlega framkomu.
2) Sjái dómari sig tilneyddan að áminna (gult spjald), brottvísa (rautt spjald), eða útiloka leikmann eða þjálfara, skal auk þess refsa sem hér segir:
a) Áminning 3 gul spjöld, 1 leikur bann
b) Brottvísun (rautt spjald) 1 leikur bann
c) Útilokun 1 leikur barn
Dómarar skulu því sjá til þess að áminning (gult spjald) séu skráð í leikskýrslur.
3) Hafi dómari vikið leikmanni af leikvelli fyrir ofbeldi gagnvart leikmanni, starfsmönnum eða áhorfendum, skal honum refsað með leikbanni í minnst þrjá leiki. Við ítrekun komi minnst 6 leikja bann.
4) Hafi dómari vikið leikmanni af leikvelli fyrir ofbeldi sem telst alvarlegs eðlis, gagnvart leikmanni, starfsmönnum eða áhorfendum, skal honum refsað með leikbanni í ótiltekinn tíma og ef um ítrekun er að ræða, gæti refsingin orðið ef um mjög alvarlegt brot er að ræða, lífstíðarbann.
5) Refsingar aganefndar er aðeins hægt að taka út í leikjum Íslandsmóts, bikarkeppni eða hliðstæðra möta og öðrum opinberum keppnum viðurkenndum of stjórn BLÍ. 6) Þegar leikmaður má leika með tveimur eða fleiri flokkum á sama leiktímabili, tekur refsingin aðeins tit leikja í þeim flokki sem brotið var framið í, nema aganefnd ákveðiannað.
6) Þegar leikmaður má leika með tveimur eða fleiri flokkum á sama leiktímabili, tekur refsingin aðeins til leikja í þeim flokki sem brotið var framið í, nema aganefnd ákveði annað.
7) Heilt lið brýtur af sér ef það yfirgefur leikvöll í mótmælaskyní, eða neitar að halda leik áfram. Refsingin við því getur orðið, auk þess sem leikreglur í blaki mæla fyrir um, brottrekstur úr keppni, leikbann á alla leikmenn liðsins og sektir.
8) Gerist áhorfendur sekir um vitaverða eða hættulega framkomu gagnvart leikmönnum eða dómurum, er heimilt að svipta það lið, sem leikurinn er leikinn hjá, næsta eða næstu heimaleikjum, þar til öryggi leikmanna og starfsmanna telst tryggt.
9) Brot framin á einu leiktímabili gilda á því næsta en ekki lengur
6. gr.
Kæri dómari leikmann fyrir brot samkvæmt 1. og 2. tölulið 5. gr. skal harm aðeins færa það inn á leikskýrslu í athugasemdir ásamt undirskrift sinni. En kæri dómari leikmann fyrir brat samkvæmt 3. og 4. tölulið 5. gr. skal hann senda aganefnd ítarlega skýrslu um brotið innan 2 sólarhringa frá því að brotið er framið.
7. gr.
Kærur skulu teknar til úrskurðar innan 3 sólarhringa frá því að kæran berst til aganefndar (sjá þó 4. gr.) Skal leikbann, ef um það er að ræða, koma til framkvæmda í næsta leik á eftir að aganefnd hefur kveðið upp úrskurð Sinn. Eigi kærður leikmaður leik innan 3 sólarhringa frá því kæran berst, skal ef unnt er ljúka máli hans fyrir þann tíma.
Reglugerð um bikara á vegum BLÍ
Allir bikarar á vegum BLÍ sem engin sérákvæði gilda um skulu falla undir þá reglu að þeir skulu vinnast til eignar ef:
a) Sama lið vinnur harm þrisvar í röð.
b) Sama lið vinnur harm fimm sinnum.
Reglugerð fyrir Íslandsmót yngri flokka.
1. gr.
Leikið skal í fjölliðamótsformi.
2. gr.
Fjöldi í fjölliðamóti skal vera:
2. flokkur: 3 mót 3. flokkur: 3 mót 4. flokkur: 3 mót 5. flokkur: 2 mót
3. gr.
Lið verða að taka þátt í öllum fjölliðamótunum til þess að vera gjaldgeng til Íslandsmeistaratitils.
4. gr.
Ef sérstakar aðstæður koma upp er mótsstjórn heimilt að hliðra til með lágmarksfjölda leikmanna hvers liðs.
5. gr.
Heimilt er að nota stúlkur í piltaliðum í 4. og 5. flokki.
6. gr.
Unglinganefnd BLÍ ákveður staðsetningu fjölliðamóta.
7. gr.
Dómnefnd í samráði við unglinganefnd sjái til þess að héraðsdómarar dæmi á fjölliðamótum.
8.gr.
Dómaranefnd skipi yfirdómara fyrir hvert fjölliðamót.
9. gr.
Mótshaldari ásamt fulltrúum unglinganefndar skal velja stjörnulið 6 leikmanna hvers flokks.
Reglugerð um öldungamót BLÍ
Fyrsti kafli - Markmið og tilgangur
1. gr.
Mótið heitir öldungamót BLÍ. Markmið þess er að ná til þeirra iðkenda blakíþróttarinnar sem stefna ekki að þátttöku í deildarkeppni BLÍ. Megin tilgangurinn er að útbreiða blakíþróttina meðal öldunga, stuðla að framförum í tækni og viðhalda getu keppenda.
2. gr.
Þátttaka í öldungamóti BLÍ er heimil öllum félögum og hópum sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
a) Vera á keppnisárinu 30 ára eða eldri í öldungadeildum, 40 ára eða eldri í öðlingadeildum og 50 ára eða eldri í ljúflingadeildum. Heimilt er að færa aldurstakmark í ljúflingadeildum niður í 45 ár fyrir 2 leikmenn í liði.
b) Hver leikmaður leiki aðeins í einni deild.
c) Félagaskipti þarf ekki að tilkynna.
Annar kafli - Framkvæmd öldungamóta
3. gr.
Öldungur skipar tvo menn með sér í öldunganefnd, sem sér um framkvæmd mótsins hverju sinni og skal hlíta gildandi reglum í hvívetna.
4. gr.
Mótið skal haldið á heimavelli öldunganefndar hverju sinni og tengjast sumardeginum fyrsta eða 1. maí, ef það þykir henta betur.
5. gr.
Keppt skal um farandgrip í öllum deildum. Hverjum farandgrip skal fylgja reglugerð. Auk þess skulu 3 efstu lið hverrar deildar hljóta verðlaun.
6. gr.
Keppt skal í deildum. Í hverri deild eru 7 lið. Leikin er einföld umferð. Ár hvert færast tvö neðstu liðin niður í næstu deild og efstu tvö lið þeirrar deildar færast upp að undanskyldum 1. og 2. deild. Öldungi er heimilt, ef sérstök ástæða er til, að hafa annan hátt á. Öldungi er heimilt með samþykki öldungaráðs að breyta reglum um skor og lengd hrina í þeim tilgangi að koma í veg fyrir mikla seinkun á tímasetningu leikja. Breytingin skal tilkynnt þátttakendum áður en mótið hefst.
7. gr.
Hver leikur er uppá 2 unnar hrinur, leikið skv. “rally point” stigagjöfinni. Leikið er uppí 25 stig nema í oddahrinu upp í 15 stig. Hrina endar í 25 eða 15 stigum þó svo að aðeins eitt stig skilji lið að. Lið fær 1 stig fyrir unna hrinu í stigakeppni mótsins. Séu lið jöfn að stigum ræður hlutfall unninna og tapaðra hrina, sé það jafnt ræður skorhlutfall, það er unnin/töpuð stig. Sé skorhlutfall jafnt skér innbyrðis viðureign úr um röð. Nethæð í karladeildum er 2.35 m en í kvennadeildum 2.18 m. Í mótinu er leyfður svonefndur frelsingi. Að öðru leyti gilda leikreglur BLÍ um blakkeppnina sjálfa.
8. gr.
Þátttökutilkynningar skal senda öldunganefnd eigi síðar en 30 dögum fyrir mót og skal þátttökugjald sem er ákveðið af mótshaldara fylgja tilkynningunni. Á mótsstað skulu þátttökuliðin leggja fram lista með nöfnum og kennitölum keppenda og bera liðin fulla ábyrgð á að skráning sé í samræmi við aldursreglur mótsins. Lið sem verður uppvíst að ólöglegri liðsskipan tapar leiknum 2 – 0 (25-0, 25-0).
9. gr.
Öldungaráð er skipað þremur síðustu öldungum, til vara koma næstu öldungur á undan í röð (fjórði síðasti, fimmti síðasta o.s.frv.). Síðasti öldungur er formaður öldungaráðs. Öldungaráð er öldunganefnd til ráðuneytis. Öllum ágreiningsmálum sem upp kunna að koma varðandi starf öldunganefndar og framkvæmd öldungamóta skal vísað til öldungaráðs og er úrskurður þess endanlegur um öll slík mál. Skriflegum kærum skal skilað innan 30 mínútna eftir að viðkomandi leik lýkur og skal henni fylgja greiðsla kr. 500, sem endurgreiðist ef kæran er tekin til greina.
Þriðji kafli – Öldungaþing
10. gr.
Öldungaþing skal haldið í tengslum við Öldungamótið. Öldunganefndin skal sjá um framkvæmd þess. Miða skal við kvöld fyrsta keppnisdags, ef unnt er. Rétt til setu á öldungaþingi hafa allir þátttakendur í öldungamótinu ár hvert. Hvert þátttökulið hefur 3 atkvæði. Hlutverk öldungaþings er að móta reglur Öldungamóta í samræmi við markmið og tilgang þeirra og dagskrá þingsins.
a) Að gera tillögur og samþykkja breytingar á fyrirkomulagi öldungamóta.
b) Að velja öldung næsta Öldungamóts. Öldungur er oddviti öldunganefndar.
c) Að fjalla um önnur mál sem þingfulltrúar óska að ræða.
Tillögur um reglugerðarbreytingar sem taka á fyrir á þinginu þurfa að hafa borist í hendur öldunganefndar 30 dögum fyrir þing, svo hægt sé að senda öllum keppnisliðum afrit af þeim tímanlega fyrir þingið. Til breytinga á reglugerð þessari þarf minnst 2/3 atkvæða og mætt skal fyrir a.m.k. 40% þeirra liða sem atkvæði eiga á þinginu. Atkvæðagreiðslur um reglugerðarbreytingu á öldungaþingi skulu fara fram með nafnakalli.
Viðbót: Lið getur framselt atkvæði sínu til öldungaþings til einstaklings í öðru liði eða einstaklings í öðru félagi.l Framsalið skal vera skriflegt og undirritað af forsvarsmanni viðkomandi liðs. Á framsali kemur fram: dagsetning framsals, frá hvaða liði framsalið er, til hvaða einstaklings framselt er og í hvaða liði sá aðili er. (samþ. á öldungaþingi á Ísafirði 2008)
11. gr.
Ákvarðanir öldungaþinga skulu lagðar fyrir ársþing BLÍ til staðfestingar.
12. gr.
Þar sem reglur þessar ná ekki til, þá skulu reglur BLÍ gilda.
13. gr.
Reglur þessar öðluðust gildi frá og með 1. maí 1989, með áorðnum breytingum á 2. gr. lið a) 1994, 2. gr. lið b) 1991 og 2006, 6. gr. 1995 og 2006 og 7. og 8.gr 1999 og 2003, 10.gr. 2003
Öldungamót BLÍ
Þátttökugjald á hvert lið til BLÍ vegna Öldungamóts BLÍ skuli vera kr. 5.000,00 árið 2008 og verður endurskoðað á ársþingi BLÍ annað hvert ár. Á móti skal BLÍ skipa 2 landsdómara til að hafa umsjón með dómgæslu og niðurröðun dómara. Framkvæmdaraðili mótsins er ábyrgur fyrir því að úrslit séu send til BLÍ, eigi seinna en viku eftir að móti lýkur. Jafnframt skal BLÍ sjá til þess að skýrslur og úrslit öldungamóta birtist í ársskýrslu BLÍ hverju sinni. (uppfært 8. maí 2009)
Leit
Nýtt á vefnum
- Landsliðin í strandblaki byrjuð að æfa
- U19 ára landslið karla og kvenna
- Afreksbúðirnar gengu vel
- Þjálfararáðstefna BLÍ hófst í kvöld
- Afreksbúðir og þjálfararáðstefna
- S-V landsmót fyrir 3.-6. flokk að Varmá í Mosfellsbæ
- Ungmennafélag Grundarfjarðar auglýsir eftir blakþjálfara
- Þjálfararáðstefna BLÍ í Mosfellsbæ.
Heimsóknir
Samtals: 1191408







