Flýtilyklar
Lög Blaksambands Íslands
1. gr.
Blaksamband Íslands (BLÍ) er æðsti aðili um öll blakmál innan vébanda Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ).
2. gr.
Blaksamband Íslands (BLÍ) er samband héraðssambanda/íþróttabandalaga og sérráða þeirra, og eru þau öll félög innan ÍSÍ, er iðka, æfa eða keppa í blaki, aðilar að BLÍ.
2.1 gr.
Hafi aðeins eitt félag innan héraðs eða íþróttabandalagsins iðkun blaks á stefnuskrá sinni, getur það félag verið aðili að sérsambandinu, ef héraðs- eða íþróttabandalagið samþykkir. Ef fleiri en eitt félag innan héraðs- eða íþróttabandalagsins hafa iðkun blaks á stefnuskrá sinni hefur Blaksamband Íslands heimild til að hafa bein boðskipti við þau ef hlutaðeigandi héraðs- eða íþróttabandalag samþykkir.
2.2 gr.
Blaksamband Íslands er æðsti aðili innan ÍSÍ um sérfræðileg málefni íþróttagreinar sinnar.
3. gr.
Starf BLÍ er í meginatriðum:
a) Að hafa yfirumsjón allra íslenskra blakmála.
b) Að vinna að eflingu blaks í landinu og koma fram erlendis fyrir hönd blaksins. Með hæfilegum fyrirvara skal tilkynna framkvæmdastjórn ÍSÍ áætlanir og ákvarðanir um samskipti við útlönd.
4. gr.
Málefnum BLÍ stjórna:
a) Blakþingið.
b) Stjórn BLÍ.
5. gr.
Blakþingið fer með æðsta vald í málefnum BLÍ. Þingið sitja fulltrúar frá aðilum BLÍ. Fulltrúafjöldi hvers aðila fer eftir tölu virkra blakiðkenda og fjölda liða sem spila í deildarkeppnum BLÍ, þannig að fyrir allt að 25 iðkendur kemur 1 fulltrúi og síðan 1 fulltrúi fyrir hverja 25 eða brot úr 25 upp í allt að 100 iðkendur, og þá 1 fulltrúi að auki fyrir hverja 50 iðkendur þar fram yfir. Fyrir hvert lið í 1. deild bætist síðan við 1 fulltrúi.
Val fulltrúa á blakþing skal miðast mið fjölda iðkenda, félaga eða keppenda innan hvers héraðssamband/íþróttabandalags um síðastliðin áramót og skal þá tilgreina hver þessara kosta skuldi gilda.
Þingið skal haldið árlega.
Stjórn BLÍ skal boða það bréflega með minnst 2ja mánaða fyrirvara.
Málefni, sem sambandsaðilar óska, að tekin verði fyrir á þinginu, skulu tilkynnt stjórn BLÍ minnst
21 degi fyrir þingið. Þá skal stjórn BLÍ tilkynna sambandsaðilum dagskrá þingsins ásamt tillögum og lagabreytingum, sem borist hafa, í síðasta lagi 14 dögum fyrir þing. Blakþingið er lögmætt, ef löglega er til þess boðað.
5.1. gr.
Öll mál er lúta að kærum og dómsmálum innan íþróttarinnar heyra undir Dómsstóla ÍSÍ og lög þar af lútandi.
6.gr.
Á blakþinginu hafa fulltrúar einir atkvæðisrétt en auk þeirra eiga rétt á þingsetu og hafa málfrelsi og tillögurétt:
a) Stjórn BLÍ, varastjórn og endurskoðendur.
b) Framkvæmdastjórn ÍSÍ.
c) Fastráðnir starfsmenn BLÍ og ÍSÍ.
d) Fulltrúar blakdómarafélaga.
e) Allir nefndarmenn BLÍ.
f) Blakdómstóll.
g) Ævifélagar BLÍ.
Auk þess getur BLÍ boðið öðrum aðilum þingsetu ef hún telur ástæðu til. Aðeins sá sem er í félagi sem iðkar blak innan sérráða eða héraðssambands, er kjörgengur fulltrúi þess á blakþingi. Hver fulltrúi hefur aðeins 1 atkvæði. Þegar langt er og dýrt að sækja þingið eða annar fulltrúi veikist eað forfallast á síðustu stundu, þá má að fulltrúi fari með fleiri en 1 atkvæði, þó að hámarki 3, en aðeins með atkvæði þess aðila, sérráðs eða héraðssambands (félags) sem hann er fulltrúi fyrir. Þó gildir þessi undanþága ekki um fulltrúa þeirra aðila, sem heima eiga þar sem þingið er háð. Umboð, sem jafnframt er beiðni til þingsins um að fulltrúi megi fara með fleiri en 1 atkvæði, verður að vera skriflegt og að vera frá stjórn hlutaðeigandi sambandsaðila.
7. gr.
Aukaþing má halda, ef nauðsyn krefur eða helmingur sambandsaðila óskar þess. Alla boðunar- og tilkynningarfresti til aukaþings má hafa helmingi styttri en til reglulegs þings. Fulltrúar á aukaþingi eru þeir sömu og voru á næsta reglulega þingi á undan og gilda sömu kjörbréf. Þó má kjósa að nýju í stað fulltrúa sem er látinn, veikur eða fluttur úr héraðinu eða forfallaður á annan hátt. Á aukaþingi má ekki gera laga- og leikreglnabreytingar og ekki kjósa stjórn, nema bráðabirgðastjórn ef meirihluti kjörinnar aðalstjórnar hefur sagt af sér eða hætt störfum að öðrum orsökum. Að öðru leyti gilda sömu reglur um það og um reglulegt blakþing.
8. gr.
Störf blakþings eru:
1. Þingsetning
2. Kosnir fastir starfsmenn þingsins
3. Kosnar fastar nefndir:
a. Kjörbréfanefnd
b. Fjárhagsnefnd
c. Laga- og leikreglnanefnd
d. Allsherjarnefnd
4. Stjórn gefur skýrslu
5. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga sambandsins til samþykktar.
6. Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár
7. Lagðar fram laga- og leikreglnabreytingar, þær sem hafa komið.
8. Teknar til umræðu aðrar tillögur og önnur mál, sem borist hafa stjórn.
9. Þinghlé
10. Nefndarálit og tillögur og atkvæðagreiðsla um þær.
11. Ákveðið gjald ævifélaga
12. Önnur mál
13. Kosning stjórnar, varastjórnar, endurskoðena og fulltrúa á íþróttaþing
14. Þingslit
Fái fleiri en þeir sem kjósa á um jafnmörg atkvæði, skal kjósa um þá að nýju, bundinni kosningu. Verði þeir enn jafnir, ræður hlutkesti. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum, nema um lagabreytingar sé að ræða, þá þarf 2/3 hluta atkvæða. Þingið getur með 2/3 atkvæða viðstaddra fulltrúa leyft að taka fyrir mál sem komið er fram eftir að dagskrá þingsins var send sambandsaðilum (skv. 5. gr.3.málsgr.).
Ársskýrslu BLÍ, sem stjórnin skal leggja fjölritaða fyrir þingið, svo og ágrip af fundargerðum þingsins, skal senda framkvæmdarstjórn ÍSÍ og sambandsaðilum BLÍ innan tveggja mánaða frá þingslitum.
9.gr.
Stjórn BLÍ skipa 5 menn: Formaður, varaformaður, meðstjórnandi, gjaldkeri og fundaritari. Skal kjósa bundinni leynilegri kosningu, formann fyrst, síðan meðstjórnendur, sem skipta með sér störfum. Formaður er kosinn til tveggja ára í senn, sem og aðrir stjórnarmenn, og ganga tveir menn úr stjórninni á hverju ári. Kjósa skal einnig 3 menn í varastjórn til eins árs og taka þeir sæti ef aðalmaður forfallast og koma inn í sömu röð og þeir voru kosnir. Stjórninni er heimilt að ráða launað starfsfólk. Aðsetur stjórnarinnar er í Reykjavík. Lok reikningsárs miðast við almanaksár.
10. gr.
Starfssvið stjórnar BLÍ er:
a) Að framkvæma ályktanir blakþingsins.
b) Að senda ÍSÍ árlega starfsskýrslu og aðrar lögboðnar skýrslur og tilkynningar.
c) Að fylgjast með því að lög og leikreglur BLÍ séu haldin.
d) Að setja nauðsynleg bráðabirgðaákvæði.
e) Að raða niður og ákveða stað og tíma fyrir Íslandsmót í öllum flokkum.
f) Að úthluta þeim styrkjum til blaks, sem BLÍ fær til umráða.
g) Að vera fulltrúi blakíþróttarinnar á erlendri grundu og sjá um að reglur varðandi greinina séu í samræmi við alþjóðareglur.
h) Að vinna að stofnun nýrra sérráða og efla á annan hátt viðkomandi sérgrein í landinu.
11. gr.
Formaður BLÍ boðar stjórnarfundi og stjórnar þeim.
12. gr.
Blakráðin (héraðssamböndin) eru milliliður milli félaga sinna og stjórnar BLÍ. Þau skulu og senda henni allar skýrslur um mót sem haldin eru innan umdæmisins. Þessar skýrslurskulu sendar innan mánaðar eftir að mótinu lauk. Ársskýrslur sínar um störf sérráðsins (héraðssambandsins) og tölu virkra blakiðkenda í umdæminu, skulu þau senda stjórn BLÍ fyrir 1. ágúst ár hvert. Á þeim byggist fulltrúaréttur og fulltrúafjöldi þeirra á blakþinginu sbr. 5.gr.
13. gr.
Stjórn BLÍ hefur frjálsan aðgang að öllum blakmótum og sýningum, sem fram fara innan vébanda BLÍ. Einnig á hún rétt á að sitja aðalfundi sérráða, dómarafélaga og héraðssambanda sem eru aðilar að sambandinu.
14. gr.
Ævifélagar BLÍ geta þeir orðið sem stjórn BLÍ samþykkir. Stjórn BLÍ ákveður réttindi ævifélaga hverju sinni. Heiðursfélaga BLÍ má stjórn BLÍ kjósa ef hún er einhuga um það.
15. gr.
Tillögur um að leggja BLÍ niður má aðeins taka fyrir á lögmætu blakþingi. Til þess að samþykkja þá tillögu, þarf minnst 2/3 hluta atkvæða. Hafi slík tillaga verið samþykkt, skal gera öllum sambandsaðilum grein fyrir henni í þingskýrslunni og tillagan síðan látin ganga til næsta reglulega þings. Verði tillagan þá samþykkt aftur, er það fullgild ákvörðun um að leggja BLÍ niður. Skal þá afhenda ÍSÍ eignir BLÍ til varðveislu.
Uppfært 21. júní 2006

Leit
Nýtt á vefnum
Heimsóknir
Í dag: 404
Samtals: 1186165
Samtals: 1186165
Mótamál
Á næstunni
4.09.2010
Afreksbúðir BLÍ
2.10.2010
Haustmót BLÍ á Akranesi
10.10.2010
S-V landsmót fyrir 3.-6. flokk að Varmá í Mosfellsbæ
30.10.2010
3. deildar mót á Ísafirði
6.11.2010