Flýtilyklar
Kvennalandsliđiđ 2007
16. janúar 2008
A-landslið kvenna heldur til Makedóníu í maí í 1. umferð Evrópukeppninnar. Liðið mun spila tvo leiki við landslið Makedóníu í ferðinni og mun liðið síðan halda áfram til Möltu þar sem liðið tekur þátt í undanriðli EM smáþjóða. Landsliðsþjálfarar eru Magnús Aðalsteinsson og Emil Gunnarsson.
Markmið landsliðsnefndar BLÍ fyrir árið 2008 er að komast áfram úr leikjunum við Makedóníu og halda sæti sínu í úrslitum EM smáþjóða með því að vera í öðru af tveimur efstu sætunum á Möltu. Ef liðið kemst áfram eftir leikina við Makedóníu spilar liðið á tveimur 4ra liða mótum í júní, annarsvegar í Rúmeníu og hinsvegar á Spáni.
14 stúlkur eru í landsliðshópnum
Elsa Sæný Valgeirsdóttir, Holte IF
Fríða Sigurðardóttir, SCAD
Erla Rán Eiríksdóttir, Þrótti Nes
Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir, Þrótti Nes
Kristín Salín Þórhallsdóttir, Þrótti Nes
Laufey Björk Sigmundsdóttir, HK
Theódóra Þórarinsdóttir, HK
Birna Hallsdóttir, HK
Karen Björg Gunnarsdóttir, HK
Steinunn Helga Björgólfsdóttir, HK
Guðrún Ása Kristleifsdóttir, HK
Lilja Jónsdóttir, Þrótti R.
Sæunn Skúladóttir, Þrótti R.
Fjóla Rut Svavarsdóttir, Þrótti R.
Þjálfari: Magnús Aðalsteinsson
Aðst.Þj: Emil Gunnarsson
Fyrsti undirbúningur liðsins er búinn en liðið hittist um jól og áramót undir leiðsögn Magnúsar og Emils. Liðið náði góðum æfingum saman og voru stelpurnar m.a. notaðar í sýnikennslu á þjálfaranámskeiði sem Magnús hélt ásamt BLÍ helgina 4.-5. janúar.
f.h. landsliðsnefndar BLÍ
Stefán Jóhannesson
Sími 899-3233
Sævar Már Guðmundsson
Framkvæmdastjóri BLÍ
Sími 663-0112
Leit
Nýtt á vefnum
Heimsóknir
Samtals: 1035534





