Útbreiðsla á krakkablaki - stofnum krakkablakfélaga

BLÍ hyggst í framhaldi undirskriftar samnings við Blaksamband Danmerkur fara í útbreiðsluátak á krakkablaki hér á landi. Þýðing bókarinnar um krakkablak og þjálfaranámskeið og þjálfun “krakkablaksérfræðinga” eru fyrsta skrefið í þessari útbreiðsluáætlun sambandsins. Næsta skref er að bjóða áhugasömum félögum og einstaklingum aðstoð við stofnun krakkablaksklúbba. Það verður síðan á ábyrgð einstakra klúbba að útbreiða krakkablak á sínu félagssvæði. Þriðja skrefið er svo að kynna krakkablak í skólum vítt og breytt um Ísland m.a. með því að senda íþróttakennurum krakkablakskennslubók og myndbandspólu. Í kjölfarið þarf að kynna krakkablakið í skólum í nágrenni krakkablaksfélaganna og aðstoða félögin þannig við að ná inn krökkum.

Þeir sem stofna krakkablaksfélag og gera krakkablakssamning við BLÍ munu fá eftirfarandi aðstoð frá BLÍ.

* Ráðgjöf um hvernig stofna megi og reka krakkablaksfélag.
* Heimsókn frá krakkablakssérfræðingi BLÍ.
* Krakkablakskennsluefni.
* Krakkablaksbyrjunarpakki sem inniheldur bæklinga og plaköt, til þess ætluð að fá börn til koma og æfa krakkablak.
* Fimm krakkablaksbolta. (Gildir aðeins fyrir “ný” félög, þ.e. sem ekki hafa sent lið á Íslandsmótið í blaki síðastliðið ár)

Verðgildi samningsins er metið á um 90-100.000 krónur.

Athygli er vakin á því að fjárráð BLÍ til styrktar krakkablakfélögum ár hvert eru takmörkuð og því gildir reglan “Fyrstir kom fyrstir fá” í þessu samhengi.

Kröfur sem gerðar eru til krakkablaksfélaga eru eftirfarandi:

* Að þjálfarar hafi reynslu af íþróttakennslu eða blaki og hafi tekið grunnnámskeið BLÍ í krakkablaki (3 tímar).
* Að forsvarsmenn félags komi á virkri samvinnu við foreldra og forráðamenn iðkenda. Stofna skal virka 3-5 mann stjórn til umsýslu krakkablaksfélagsins og eflingu þess.
* Að félagið taki þátt í Íslandsmótum BLÍ.
* Stuðla að frekari menntun þjálfara félagsins.
* Krakkablaksfélög kynni sér og og taki þátt í stefnu ÍSÍ um “Fyrirmyndarfélög ÍSÍ”.
* Boðið sé upp á reglulegar æfingar fyrir bæði pilta og stúlkur að lágmarki 2 klst. á viku á tímabilinu september til og með maí.
* Að félagið kynni krakkablak í nágrannabyggðum sínum og er þá sérstaklega horft til skóla á viðkomandi svæði.

Nánari upplýsingar gefur
Sævar Már Guðmundsson

bli@bli.is

Sími 5144111

Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning