Hæfileikabúðir BLÍ

Áætluð tímasetning -  febrúar - vika 6 eða 7 ár hvert.

Árið 2009 -  6. - 8. febrúar  - staðsetning: Kópavogur - HK - Þjálfarar, Apostol Apostolov og Miglena Apostolova fyrir stúlkur og Zdravko Demirev og Martin Raditchkov fyrir drengi.

Í byrjun hvers árs verður krökkum á aldrinum 14-17 ára boðið að taka þátt í hæfileikabúðum BLÍ.
Markmið búðanna er:

* að vera hvatning fyrir krakkana að standa sig á æfingum og í keppni
hjá sínu félagi,
* að ná inn nýjum efnilegum krökkum í íþróttina,
* að auka gæði blaks hjá yngriflokkum á Íslandi,
* að vera forval fyrir unglingalandslið.

Á undanförnum árum hafa þjálfarar félaganna valið þátttakendur í hæfileikabúðum BLÍ. Nú verður breyting þar á og ætlum við að taka upp skráningarkerfi fyrir hæfileikabúðirnar. Sérstakt eyðublað verður tiltækt hjá þjálfurum félaganna sem krakkarnir geta fyllt út í samráði með foreldrum og þjálfurum. Þátttakandi skilar eyðublaðinu til þjálfara síns sem sendir Blaksambandinu í tölvupósti:

Í hæfileikabúðunum er farið yfir og metið styrkleika eftirfarandi þátta hjá hverjum og einum:

* tæknikunnáttu, boltatækni í íþróttinni,
* líkamlegt atgervi s.s. stökk- eða slagkraft (sprengikraftur), hæð,
* leiðtogahæfileika, skapgerð,
* dugnað.

Búðirnar hafa jafnframt verið nýttar sem forval fyrir unglingalandslið BLÍ U-17 ára sem tekur m.a. þátt í Norðurlandamótum ár hvert.

Formönnum félaga er sent bréf í janúar með eyðublaðinu og hann kemur því áfram á þjálfara síns félags hjá 3. og 4. flokki (eldra ár). Þjálfurum er í sjálfsvald sett hvenær þeir skylda krakkana sína að skila til sín en þjálfara ber að virða frestinn til að skila til BLÍ (30. janúar 2009).

Forsvarsmenn og þjálfarar hæfileikabúðanna áskilja sér rétt til að hafna umsóknum um búðirnar. Slíkt gæti t.d. komið til vegna of mikils fjölda umsókna. Skila skal umsóknum á tölvupósti fyrir 30. Janúar. Fyrirspurnir má senda á netfangið bli@bli.is

Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning