Bridgestonebikarinn 2010

Fyrirkomulag riðlakeppninnar

Spilað er í tveimur riðlum í móti 1 sem haldið er í Fylkishöllinni. Sigurliðið úr riðlakeppninni fer beint í undanúrslit keppninnar sem fram fer laugardaginn 13. mars í Laugardalshöllinni. Úr riðli A fer sigurliðið í undanúrslitaleik 1 og úr riðli B fer sigurliðið í undanúrslitaleik 2.

Í móti 2 spila liðin sem eftir sitja um tvö sæti í undanúrslitum. Aðeins er spilað í einni deild í þessu móti en það fer fram á Akureyri 12.-13. febrúar 2010. Tvö efstu sætin fara í pott og er dregið um hvort liðið fer í undanúrslitaleik 1 og 2. Dregið verður fljótlega eftir undankeppni 2.

Í riðlakeppninni þarf að vinna tvær hrinur til þess að vinna leik. Leikið er upp í 25 og tvö stig þarf að skilja. Í oddahrinu er leikið upp í 15 og þar þarf einnig tvö stig að skilja liðin að.

Í undanúrslitum og úrslitum Bridgestonebikarsins er leikið upp á þrjár unnar hrinur. Leikirnir fara allir fram í Laugardalshöllinni á þar til gerðum blakdúk sem Blaksamband Íslands á og rekur. Það verður sannkölluð bikarhelgi þegar undanúrslitin fara fram því úrslitaleikirnir verða á sunnudeginum.

 

 

Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning