Fréttir

Ýmir 2-3 Þróttur R

Einn leikur fór fram í MIKASADEILD kvenna í dag þegar Ýmir tók á móti Þrótti Reykjavík. Gestirnir höfðu betur í hörkuleik í Fagralundi 3-2.

Ýmir byrjaði leikinn mun betur í dag og vann tvær fyrstu hrinurnar, 25-22 og 25-21. Þróttarastúlkurnar komu heldur betur til baka í hrinu þrjú og gjörsigruðu hana 25-15. Fjórða hrinan endaði einnig með sigri Þróttar R, 25-17 og var leikurinn því jafn 2-2. 
 
Oddahrinan var spennandi frá byrjun og við leikvallaskipti var staðan 8-7, Þrótti í vil. Þróttur hélt forystu til loka og vann hrinuna 15-12 og þar með leikinn 3-2.
 
Þróttur Reykjavík styrkti stöðu sína í Mikasadeildinni og er nú með 13 stig í þriðja sæti deildarinnar. Ýmir fékk 1 stig úr leiknum í dag og komst upp fyrir Þrótt Nes, í fjórða sætið með 10 stig.
 
Stigahæstu leikmenn í liði Þróttar R voru Fjóla Rut Svavarsdóttir með 25 stig en Hildigunnur Magnúsdóttir skoraði 14 stig. Í liði Ýmis var Birna Hallsdóttir stigahæst með 14 stig en Rasa Ratkuté og Inga Lillý Brynjólfsdóttir skoruðu 12 stig fyrir Ými. 


Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning