Fréttir

Vika í stærsta mót frá upphafi

Aðeins er ein vika þar til flautað verður til leiks á Mosöldinni 2010, 35. Öldungamóti BLÍ. Mótið er haldið í Mosfellsbæ en þar verða samtals 125 lið að keppa í alls 16 deildum.

 

Öldungamótið er yfirleitt lokaviðburðurinn á löngu keppnistímabili blakmanna og kvenna. Mótið hefur farið ört vaxandi undanfarin ár en í fyrra voru 108 lið skráð til leiks og nú alls 125 sem er met. Reikna má með um 1000 keppendum á mótinu en uppselt er á lokahófið sem tekur 750 manns. Bæjarlífið í Mosfellsbæ mun verða líflegt dagana sem mótið er en leikir hefjast kl. 08.00 á morgnana og standa fram yfir kvöldmatarleytið. Á kvöldin er svo boðið upp á ýmislegt og m.a. munu fara fram pressuleikir A landsliðanna og úrvalsliða öldunga á föstudagskvöldinu.

Á heimasíðu mótsins má finna allar upplýsingar um mótið og það sem í boði verður en Mosöldin hefur nýlega gefið út lag mótsins sem spilast um leið og maður opnar www.mosold.is Lagið heitir "Komdu í blak" og er íslenskur blaktexti við lagið um hana Karólínu sem er svo góð, sem DJ Ötzi hefur gert vinsælt. Er alveg þess virði að kíkja á heimasíðuna www.mosold.is



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning