Úrslitamót NEVZA keppni félagsliða
Almennt - föstudagur 27.jan.12 11:29 - Lestrar 61
Í gær hófst keppni í Úrslitum NEVZA móts félagsliða karla. Fjögur lið eru í úrslitum og voru tveir leikir í gær.
Þátttökuliðin eru Marienlyst DEN, Gentofte DEN, Middelfart DEN og Nyborg NOR. Tvíburabræðurnir Hafsteinn og Kristján Valdimarssynir spila með Marienlyst í danmörku en þeir eru nýbakaðir bikarmeistarar.
Marienlyst vann 3-2 sigur í gær á liði Nyborg frá Noregi. Það er gott veganesti fyrir framhaldið hjá liðinu því í kvöld mætir liðið Middelfart sem tapaði fyrir Gentofte í gær 3-0.
Allir leikir mótsins fara fram í Gentofte í Kaupmannahöfn og eru lokaleikirnir á morgun. Hægt er að fylgjast með gangi mála hér: http://www.volleynet.dk/
Í dag hefst svo kvennakeppnin í Stod í Noregi, rétt utan við Þrándheim. Þar leika dönsku liðin Holte IF og Bröndby ásamt tveimur norskum, Oslo Volley og Stod en þar leikur einmitt Birta Björnsdóttir, landsliðskona í blaki.
Hægt er að fylgjast með kvennamótinu hér: http://www.stodvolley.no/







