Úrslitahelgi í Bridgestone bikarnum
Almennt - sunnudagur 14.mar.10 12:00 - Lestrar 338
Helgina 13.-14. mars verður sannkölluð blakveisla í Laugardalshöllinni. Þá verður blakdúkurinn settur á gólfið og umgjörðin verður hin glæsilegasta á þessari stóru helgi þegar undanúrslitaleikirnir í bikarnum verða spilaðir á laugardegi og úrslitaleikirnir á sunnudegi.







