U19 ára landslið
Almennt - mánudagur 16.ágú.10 11:47 - Lestrar 929
U19 ára landsliðin í blaki halda til Falköping í Svíþjóð 24.-26. september 2010. BLÍ hefur ráðið þjálfara liðanna og eru hópar væntanlegir en fyrstu æfingar verða helgina 3.-5. september.
Apostol Apostolov og Zdravko Demirev hafa verið ráðnir þjálfarar unglingalandsliðanna. U19 ára landsliðin halda til Falköping í Svíþjóð og U17 ára liðin fara til Ikast í Danmörku í október.
Apostol verður með stúlkurnar og Zdravko með drengina en báðir þjálfararnir hafa mikla reynslu við þjálfun og hafa báðir þjálfað landslið Íslands áður.







