Ţróttur R í úrslit í kvenna
Annar leikur HK og Þróttar Reykjavík fór fram í kvöld í KHÍ þar sem heimaliðið sigraði 3-0 og er þar með komið í úrslit.
Þróttur sigraði leik liðanna á laugardag í Digranesi og þurfti HK að vinna leikinn í kvöld til þess að tryggja sér oddaleik á miðvikudag. Það fór þó þannig að Þróttur sigraði leikinn 3-0 og tryggði liðið sér þátttöku í úrslitum Íslandsmótsins.
Leikurinn byrjaði vel og í fyrstu var jafnt á öllum tölum. HK komst fljótt yfir sem Þróttur jafnaði og komst fjórum stigum yfir 11-7. HK náði að jafna leikinn 14-14 og kom þá góður kafli heimaliðsins sem skilaði liðinu sigri í hrinunni 25-18.
HK byrjaði aðra hrinuna af krafti og komst í 10 stiga forskot, 15-5. Á þeim kafla gekk nánast allt upp hjá HK og Þróttur átti í erfiðleikum með sterkar uppgjafir Birnu Hallsdóttur og Birtu Björnsdóttur hjá liði HK. Smám saman náði Þróttur þó að vinna upp muninn og jafna leikinn 21-21. Eftir það var ekki aftur snúið og heimaliðið kláraði hrinuna 25-22.
Þriðja hrinan byrjaði einnig vel fyrir HK og komst liðið í 5-1. HK hélt forystunni um hríð en Þróttur náði að jafna 11-11 og komast yfir. Jafnt var á flestum tölum eftir það en Þróttur kláraði hrinuna 25-22 með uppgjöf beint í gólf, og vann þar með leikinn 3-0.
Bestu leikmenn liðanna voru Birna Hallsdóttir fyrir HK og Karen Björg Gunnarsdóttir. Ingibjörg Gunnarsdóttir átti einnig góða spretti í sókn og hávörn fyrir HK og hin unga og efnilega Birta Björnsdóttir stóð sig vel í uppspilinu. Í liði Þróttar voru Anna Pavliouk og Lilja Jónsdóttir atkvæðamestar en mikið bar einnig á Agniezku Wysokinska á kantinum.
Úrslitin hefjast á laugardaginn en þá leika Þróttur Nes og Þróttur Reykjavík líkt og á síðasta ári. Fyrsti leikurinn verður í Neskaupstað og hefst kl. 14.00. Annar leikur liðanna verður í KHÍ á mánudagskvöld kl. 19.30.





