Þróttur Nes með silfrið
Fyrsti leikur dagsins í Ásgarði var kvennaleikurinn Stjarnan-Þróttur Nes. Gestirnir byrjuðu betur og unnu fyrstu hrinuna 15-25. Stjörnuliðið átti góða spretti í annarri hrinunni og náðu að halda jöfnu framan af. Þá kom góður kafli hjá gestunum sem endaði með sigri liðsins 13-25. Þriðja hrinan var svipuð og hinar tvær. Fljótlega varð forystan Þróttar Nes megin og hélst það til loka, 16-25 sigur því staðreynd og silfur um hálsinn komið í höfn.
Stigahæstu leikmenn í liði Þróttar Nes voru Miglena Apostolova með 13 stig og Helena Kristín Gunnarsdóttir með 12 stig. Í liði Stjörnunnar var Lilja Jónsdóttir stigahæst með 10 stig og Hjördís Eiríksdóttir var með 6 stig.
KA menn mættu saddir til leiks í dag og var greinilegt að nokkrir leikmenn höfðu lítinn áhuga á að spila leikinn. KA tryggði sér deildarmeistaratitilinn í gær með góðum sigri á Þrótti Reykjavík en í dag voru leikmenn liðsins afar slakir. Stjarnan vann leikinn 3-1 og var fyrsta hrinan eini ljósi punkturinn í leiknum. Stjarnan komst í gott forskot í fyrstu hrinunni 16-11 en KA nær að jafna leikinn 18-18. Eftir það var allt í járnum og segja má að KA menn hafi stolið sigrinum 26-28. Það virkaði vel á Stjörnumenn í hrinunni á eftir en jafn illa á KA menn því hrinan endaði með 14 stiga sigri heimamanna, 25-11. Ekkert gekk upp hjá KA mönnum og virtist sem enginn hafði áhuga á að spila leikinn. Þriðja hrinan endaði 25-20, Stjörnunni í vil og sú fjórða 25-17. Stjarnan vann því leikinn og er ljóst að vel gengur að byggja upp lið í Garðabænum því í síðustu hrinunni voru reynsluboltarnir flestir settir á bekkinn. Í liði KA fengu yngri leikmenn að spreyta sig en stigakóngur deildarinnar spilaði þó mest allan leikinn ásamt uppspilaranum.
Stigahæstu leikmenn voru Emil Gunnarsson hjá Stjörnunni með 13 stig, þar af 5 ása og Róbert Karl Hlöðversson með 11 stig. Einn af yngri leikmönnum Stjörnunnar átti best innkomuna í leiknum og skoraði 9 stig, þar af 5 ása en samtals skoraði Stjarnan 17 stig beint úr uppgjöf á móti 3 stigum KA manna. Í liði KA var Hilmar Sigurjónsson að spila best, skoraði 15 stig og Piotr Kempisty skoraði 12 stig, allt úr sókn.
Lokastaða í Mikasadeild karla er því þannig að KA er efst með 20 stig, HK í öðru sæti með 18 stig og Stjarnan í því þriðja með 12 stig. Stjarnan fékk bronsverðlaun sín afhent að leik loknum úr hönfum Jasonar Ívarssonar.
Síðasti leikurinn í Mikasadeild kvenna er á morgun í KA heimilinu. HK fer í heimsókn norður og leikur gegn KA liðinu sem nú þegar veit að endar í þriðja sæti deildarinnar sem verður að teljast afar óvænt miðað við það að þær komu nýjar inn í deildina í haust.







