Þjálfararáðstefna BLÍ hófst í kvöld
Almennt - laugardagur 4.sep.10 00:36 - Lestrar 958
Alls eru um 30 þjálfarar og íþróttakennarar skráðir á þjálfararáðstefnu BLÍ sem hófst í kvöld. Peter Guernari var með þjálfaranámskeið í blaki í kvöld og í fyrramálið verður þjálfaranámskeið í krakkablaki. Um kl. 12.30 verður Peter svo með námskeið í sitjandi blaki.
Þjálfararáðstefnan fer fram að Varmá í Mosfellsbæ en yngriflokkanefnd BLÍ hefur yfirumsjón með viðburðinum. Samhliða ráðstefnunni verða um 100 krakkar á aldrinum 14-17 ára í afreksbúðum BLÍ.
Dagskrá Laugardagsins er þessi:
Krakkablaknámskeið hefst kl. 09.00 í bóklegum fyrirlestri.
Afreksbúðir BLÍ 09.00-11.30
Æfingar U19 ára landsliða karla og kvenna kl. 11.30
Námskeið í sitjandi blaki kl. 12.30
Fyrirlestur Ingibjargar Gunnarsdóttur um næringarfræði fyrir þátttakendur í Afreksbúðum er kl. 12.30.
Æfingar hefjast að nýju kl. 14.30 í Afreksbúðum
Verklegi hlutinn í krakkablaknámskeiðinu er einnig frá 14.30-16.00
Æfingar U19 ára landsliða karla og kvenna kl. 16.45
Á sunnudag er svo svipuð dagskrá. Þá verður Peter Guernari með síðari hlutann af þjálfaranámskeiði í blaki og Afreksbúðir halda áfram á sömu tímum. U19 ára landsliðin fá þó aðeins eina æfingu, kl. 16.15.







