Tap 3-2 gegn Luxemborg
Almennt - laugardagur 12.jún.10 12:40 - Lestrar 685
Ísland tapaði naumlega fyrir Luxembourg í morgun í 5 hrinum, 21-25,25-18,21-25,25-22,14-16). Leikurinn stóð í 129 mínútur!
Ísland tapaði naumlega fyrir Luxembourg í morgun í 5 hrinum, 21-25,25-18,21-25,25-22,14-16). Leikurinn stóð í 129 mínútur! Hitinn i keppnishollinni er 26`C og rakinn um 75% thannig ad mikid reynir a leikmenn
Eftir slæmt tap gegn San Marino í gær voru stúlkurnar staðráðnar í að gera betur í næstu leikjum. Allt annar bragur var á leik liðsins gegn firnasterku liði Luxembourgar. Liðið gerði mun færri mistök, sóknarleikurinn var öflugur og með smá heppni hefði leikurinn getað unnist. Byrjunarlidid i dag var skipad Fridu Sigurdardottur, Birnu Baldursdottur, Kristinu Salinu THorhallsdottur, Hjordisi Eiriksdottur, Jonu Gudlaugu Vigfusdottur og Helenu Gunnarsdottur.
Það er ánægjulegt að sjá að íslenska liðið er á pari við það sem best gerist í Smáþjóðadeildinni. Nú tekur við nokkurra tíma hvíld en liðið leikur gegn Möltu síðar í dag. Dagurinn verður langur og erfiður fyrir lykilleikmenn Íslands og mikilvægt að vel gangi að skipta leiktímanum á milli leikmanna. Það mun því reyna meira á varamenn liðsins í leiknum gegn Möltu.







