Stjarnan tók HK í spennuleik
Stjörnumenn byrjuðu leikinn mjög vel í kvöld og voru yfir 18-9 þegar vel var liðið á fyrstu hrinuna. Þá virtist sem HK liðið hafi sett sína vél í gang og slökkt á Stjörnumönnum því liðið var fljótt að minnka muninn og jafna 20-20. HK notaði meðbyrinn á þessum tímapunkti og kláraði hrinuna 21-25. Önnur hrina var æsispennandi og tilþrifin flott á köflum. Baráttuandi var í báðum liðum og endaði hrinan 26-24 heimamönnum í vil. Stjarnan náði upp góðu forskoti í þriðju hrinunni en seinni hlutinn var þó í járnum. Á lokasprettinum hafði HK náð að jafna 24-24 á ótrúlegan hátt en Stjarnan tók tvö síðustu stigin og kláraði hrinuna 26-24. Í fjórðu hrinunni var jafnt á tölum til að byrja með en fljótlega náðu HK strákarnir forystu 11-16. Stjarnan náði aldrei að brúa bilið og nýttu tímann vel í hrinunni til að hvíla lykilmenn eins fyrir átökin í oddahrinunni. Þá fengu yngri leikmenn liðsins að spreyta sig á meðan og stóðu sig býsna vel en hrinan endaði 20-25, HK í vil.
Oddahrinan byrjaði vel fyrir heimamenn og komust þeir í 5-0. HK komst aldrei í takt við leikinn eftir það og vann Stjarnan hrinuna 15-9, og þar með leikinn 3-2. Góður sigur hjá Stjörnunni sem er í þriðja sætinu með 8 stig. HK er sem fyrr í öðru sætinu með 10 stig, 6 stigum á eftir KA en aðeins eru þrjár umferðir eftir í deildinni.
Stigahæstu leikmenn Stjörnunnar voru Emil Gunnarsson með 24 stig og Róbert Karl Hlöðversson með 19 stig. Í liði HK var Orri Þór Jónsson stigahæstur með 19 stig og Brynjar Pétursson með 15 stig.
Næsti leikur í Mikasadeild karla er næstkomandi þriðjudag þegar HK heimsækir Þrótt í KHÍ. Hefst leikurinn kl. 18.40.







