Fréttir

Stigaskor MIKASADEILDAR karla uppfært

Blaksamband Ísland hefur nú uppfært stigaskor leikmanna í Mikasadeild karla. Willem Mazzotti hjá Þrótti Reykjavík er efstur.

 

Willem Mazzotti er stigahæsti leikmaður Mikasadeildarinnar í blaki með samtals 142 stig. Hann hefur skorað 108 stig í sókn og er stigahæstur þar en Piotr Kempisty hjá KA kemur honum næst með 102 stig. Piotr er jafnframt í öðru sæti í heildarstigaskori með 117 stig og Orri Þór Jónsson er með 93 stig.

Í hávörnum eru leikar jafnir. Will Mazzotti, Þrótti Reykjavík og Alexander Stefánsson, HK hafa báðir skorað 17 stig úr hávörn en Eiríkur R. Eiríksson, Stjörnunni kemur næstu með 14 stig.

Í uppgjöfum hefur Will Mazzotti skorað mest, 17 stig. Ingólfur Hilmar Guðjónsson er í öðru sætinu með 15 stig skoruð úr uppgjöf. Í þriðja sætinu er Piotr Kempisty með 13 stig en.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning