Fréttir

Steinunn Helga valin Íþróttamaður Seltjarnarness

Steinunn Helga, frelsingi U19 á Akureyri
Steinunn Helga, frelsingi U19 á Akureyri
Val á Íþróttamönnum Seltjarnarness var gert kunngjört í gær. Þar var Steinunn Helga Björgólfsdóttir, blakkona úr HK valin sem Íþróttakona Seltjarnarness.

 

Steinunn Helga er frelsingi í kvennaliði HK. Hún er uppalin í blaki í Neskaupstað og byrjaði ung að æfa þar. Árið 2006 flutti hún á Seltjarnarnes og hóf að æfa blak hjá HK. Steinunn Helga er 18 ára gömul og varð Íslands-, deildar og bikarmeistari með liði HK árið 2009. Hún var valin í U17 ára og U19 ára landsliðin árið 2008 og var svo í A landsliði Íslands í fyrsta skipti árið 2009 þegar liðið vann bronsverðlaun á Smáþjóðaleikunum á Kýpur. Steinunn var einnig í U19 ára landsliðinu sem fór til Ikast í Danmörku í október 2009.

Blaksamband Íslands óskar Steinunni til hamingju með nafnbótina.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning