Fréttir

Skráning í Fantamótið í fullum gangi

Fantamótið í strandblaki
Fantamótið í strandblaki

Skráning er í fullum gangi í Fantamótið í strandblaki sem fram fer vikuna 11. - 15. ágúst í Fagralundi í Kópavogi en það er lokamót sumarsins. Sigurvegarar mótsins verða krýndir Íslandsmeistarar.

Að þessu sinni verður keppt í 3 flokkum, A-flokki, B-flokki og svo unglingaflokki.

8 stigahæstu lið sumarsins keppa til úrslita á laugardeginum 14. ágúst og eru það lið sem flokkast í A-flokk.

Miðvikudagskvöldið 11. og fram að föstudagskvöldinu 13. ágúst verður keppt í B-flokki, en úrslitaleikirnir úr B-flokki verða einnig spilaðir á laugardegi.

Unglingaflokkurinn verður allur spilaður á sunnudeginum 15. ágúst en engin stig þarf til að geta keppt í unglingaflokki, eingöngu að uppfylla skilyrði um réttan aldur.

Skráningu lýkur sunnudaginn 8. ágúst kl 23:59

Athugið að allir geta tekið þátt í Íslandsmótinu, það fer bara eftir stigafjölda hvort liðið lendir í A- eða B-flokki.

Nánari upplýsingar og skráning er á www.strandblak.is



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning