Fréttir

Sætaskipti á ný í Mikasadeild kvenna

Fjórir leikir fóru fram í MIKASA deildunum í blaki í dag. Toppslagur var í Digranesi þegar HK vann Þrótt Nes 3-0 og er nú liðið skrefi nær deildarmeistaratitli í MIKASA deild kvenna. KA mætti Fylki norðan heiða og vann góðan heimasigur.

 

Dagurinn var góður fyrir blakdeild HK í dag. Byrjaði veislan í Digranesi kl. 14.00 en þar áttust við topplið HK og Þróttur Nes. Allt var útlit fyrir hörkuleik í fyrstu hrinu því jafnræði var á með liðunum. Gestirnir höfðu betur 21-24 þegar HK áttaði sig á stöðunni og gaf allt í. HK jafnaði hrinuna og vann hana svo 27-25. Í annarri hrinunni var HK betra liðið en þó náðu að klára hrinuna 25-23 eftir nokkurt bakslag undir lok hennar. Þriðja hrinan var eign heimaliðsins í HK sem vann hrinuna örugglega 25-11. Með sigrinum steig HK skrefi nær deildarmeistaratitlinum í Mikasa deildinni og geta með sigri á Þrótti Reykjavík tryggt sér hann á þriðjudag.

Næsti leikur í Digranesi var slagur HK og Stjörnunnar í karlaflokki. Fyrir leikinn höfðu liðin spilað þrjá leiki í vetur sem allir höfðu endað með sigri heimaliðsins í oddahrinu. Á því varð engin breyting og vann HK leikinn 3-2 (21-25, 25-21, 20-25, 28-26, 15-10). HK eigir því von um deildarmeistaratitilinn því liðið jafnaði KA að stigum í efsta sæti deildarinnar með lakara hrinuhlutfall. KA leikur gegn Þrótti Reykjavík og Stjörnunni um næstu helgi og sigur í öðrum hvorum leiknum dugir fyrir KA menn.

KA mætti Fylki í KA heimilinu í dag. KA liðið mætti einbeitt til leiks og vann leikinn nokkuð örugglega 3-0 (25-14, 25-15, 25-16) og smellti sér í annað sæti deildarinnar. Liðið á einn leik eftir í deildinni en það er heimaleikur gegn HK næstkomandi sunnudag.

Síðasti leikur dagsins var í Digranesi en byrjaði rúmri klukkustund á eftir áætlun. Þar mættust Ýmir og Stjarnan en fyrri viðureign liðanna endaði 2-3, Ými í vil á útivelli. Sama var upp á tengingnum í kvöld en Stjarnan lagði Ými að velli á útivelli, 2-3 (18-25, 25-21, 23-25, 26-24, 11-15). Með sigrinum fór liðið uppfyrir Þrótt Reykjavík í 6. sæti deildarinnar.

Síðustu leikir í Mikasadeildunum fara fram í vikunni og um næstu helgi. Á þriðjudag mætast Þróttur R og HK í kvennaflokki kl. 18.40 í KHÍ. Á föstudag mætast svo Þróttur R og KA í karlaflokki og Fylkir fær Þrótt Nes í heimsókn. Þá spilar Stjarnan við Þrótt Nes í kvennaflokki á laugardag og Stjarnan fær KA í heimsókn í karlaflokki, einnig á laugardag. Á sunnudag mætast svo HK og KA á Akureyri í kvennaflokki.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning