Óvænt í bikarnum
Almennt - föstudagur 10.feb.12 23:42 - Lestrar 264
Undankeppni 2 í Bikarkeppni Blaksambands Íslands hófst í kvöld. Nokkuð var um óvænt úrslit í kvöld, bæði í karlaflokki og í kvennaflokki.
Konurnar riðu á vaðið í kvöld og fóru þrír leikir af stað kl. 19.00 í Íþróttahöllinni á Akureyri. HK sigraði Ými nokkuð örugglega 2-0 í sínum leik. Stjarnan og Eik áttust við í æsispennandi leik þar sem Eikarkonur höfðu betur 2-0 (26-24 og 25-21). Nokkuð óvænt úrslit þar á ferð þar sem lið Eikar er utan deildar. Þróttur Reykjavík og KA áttust við, sömuleiðis í hörkuleik. Þar hafði KA betur að þessu sinni, 2-0 (25-21 og 25-19).
Karlakeppnin hófst kl. 20.15. Stjarnan átti leik við UMFG en Grundfirðingar mættu ekki til leiks og Stjörnunni því dæmdur sigur í leiknum 2-0 (25-0 og 25-0). Í hinni viðureign kvöldsins mættust Þróttur Nes og KA. Æsispennandi leikur sem endaði í oddahrinu og sigri Þróttar Nes. Þróttur Nes vann fyrstu hrinuna 25-23 og KA aðra hrinuna 25-19. Oddahrinan var æsispennandi á öllum tölum en KA liðið missti þó Filip Szcewzyk í meiðsli en hann er uppspilari liðsins og þjálfari þess. Ungur uppspilari liðsins, Valþór Karlsson kom inn og stóð sig vel hrinan var spennandi allt til loka og endaði 16-14 fyrir Þrótti Nes.
Þrír kvennaleikir hófust svo kl. 21.30. HK vann KA 2-0 (25-19 og 26-24), Stjarnan vann Ými 2-0 (25-18 og 25-21) en mest spennandi leikurinn var svo leikur Þróttar R og Eikar. Þróttur vann fyrstu hrinuna nokkuð örugglega 25-18. Eikin neitaði að gefast upp og knúði fram sigur í annarri hrinunni 27-25 og þurfti því að leika oddahrinu í leiknum. Eikin hafði frumkvæðið í oddahrinunni sem endaði 15-12, Eik í vil.
Staðan í kvennaflokki er því þannig að HK er með 6 stig, Eik 5 stig, Stjarnan og KA hafa 3 stig, Þróttur Reykjavík 1 stig og Ýmir situr á botninum með 0 stig.
Staðan í karlaflokki er þannig að Stjarnan er efst með 3 stig, Þróttur Nes í öðru sætinu með 2 stig, KA í þriðja sæti með 1 stig. Fylkir og UMFG eru án stiga en Fylkisliðið sat hjá í kvöld.
Leikir hefjast kl. 09.00 í fyrramálið með leik Stjörnunnar og Fylkis í karlaflokki. Hægt er að fylgjast með gangi mála á www.blak.is - smellt á Bikarmót BLÍ 2012 og 2. mót inni í deildum.







