Orri Þór og Helena Kristín valin efnilegust

Í 1. deildinni voru þau Orri Þór Jónsson, HK og Helena Kristín Gunnarsdóttir, Þrótti Nes valin efnilegust af leikmönnum deildanna. Besti leikmaður 1. deildar kvenna var Miglena Apostolova Þrótti Nes en hjá körlunum var jafntefli á milli Masayuki Takahashi, Þrótti R og Piotr Kempisty hjá KA. Voru þeir báðir því útnefndir Bestu leikmenn 1. deildar karla árið 2009 en Hilmar Sigurjónsson tók við verðlaununum fyrir Piotr þar sem hann var vant við látinn þetta kvöld.
Ekki var hægt að útnefna besta leikmann 2. deildar kvenna sökum þátttökuskorts. Þeir atkvæðaseðlar sem bárust náðu ekki að mynda hreint kjör neins leikmanns en alls bárust 12 nöfn til BLÍ um besta leikmanninn. Í 2. deild karla var Ivo Bartkevics, Fylki valinn besti leikmaðurinn en Zdravko Demirev, Fylki sem var í öðru sæti í kjörinu tók við verðlaunum í hans stað.
Í 3. deild kvenna var Matthildur Þórarinsdóttir, Álftanesi valin best.
Besti dómari tímabilsins var Sævar Már Guðmundsson en hann hlaut þennan titil einnig í fyrra. Aðrir dómarar sem fengu tilnefningu voru Stefán Jóhannesson, Leifur Harðarson, Brynjar Pétursson, Hannes Karlsson og Ólafur J. Júlíusson.
Lið ársins var tilkynnt um leið og stigaskorið var kunngjört.
Lið ársins í 1. deild kvenna var svona:
Miglena Apostolova, Þrótti Nes vann sóknarstigin með 181 stig og 221 stig samtals
Lilja Jónsdóttir, Þrótti Reykjavík skoraði flest stig úr hávörn, 35 stig og átti flestar uppgjafir 36 stig.
Kristín Salín Þórhallsdóttir, Þrótti Nes var valin besti uppspilarinn
Sæunn Skúladóttir, Þrótti R var valin besti frelsinginn
Lið ársins í 1. deild karla var svona:
Piotr Kempisty, KA vann sóknarstigin með 167 stig og hann átti einnig flestar uppgjafir, 28 talsins og skoraði samtals 212 stig í deildinni.
Áki Thoroddsen, Þrótti R átti flestar hávarnir, 31 stig.
Filip Szewczyk, KA var valinn besti uppspilarinn
Halldór Ingi Kárason, Þrótti R og Árni Björnsson, KA urðu svo jafnir í kjöri um besta frelsingjann.
Alls mættu um 120 manns í matinn og var hátíðin með besta móti. Eftir góðan mat og fínar ræður frá formanni BLÍ og heiðursgestinum Kristjáni Möller, samgönguráðherra var byrjað að dansa en um tónlistina og veislustjórn sá hann Birgir Örn Steinarsson.







