Fréttir

Öldungar skemmtu sér

35. öldungamóti BLÍ var slitið á laugardaginn með pompi og prakt. Gera má ráð fyrir að um 1000 blakarar höfðu þá spilað og skemmt sér saman í þrjá daga í Mosfellsbænum á Mosöldinni 2010. Alls mættu 125 lið til leiks sem er metfjöldi liða. Mótið verður haldið í Vestmannaeyjum að ári.

 

Öldungur mótsins var Guðrún Kristín Einarsdóttir en hún var hæstánægð með útkomuna um síðustu helgi. Á föstudagskvöldinu var boðið upp á pressuleiki landsliðanna við úrvalslið öldunga og unnu funheitir öldungar lið Íslands í báðum flokkum. Þess ber þó að geta að aðeins var leikið upp á tvær unnar hrinur, líkt og í öldungamótinu sjálfu.

Keppni var jafnan hörð og spennandi í flestum deildum. Það má best sjá á þeirri seinkun sem varð á leikjum en venjulega er gert ráð fyrir 45 mínútum á hvern leik. Sumir leikjanna fór jafnvel upp í 1 klst. og 15 mínútur og er greinilegt að gera þarf ráð fyrir lengri tíma á leik í framtíðinni. Samtals var leikið á 10 völlum í einu á fimmtudeginum og 9 völlum undir sama þaki á föstudegi og laugardegi. Mótinu lauk með verðlaunaafhendingu seinni part laugardagsins en þar mátti sjá þrjú efstu liðin í hverri deild fá verðlaun. Í efstu deildunum unnu HK A kvennaflokkinn og Þróttur Nes karlaflokkinn. Öll önnur úrslit má sjá á www.blak.is.

Síðar um kvöldið var slegið upp 760 manna lokahófi Öldunga. Á hófinu var það tilkynnt að á næsta ári munu Þróttarar sjá um mótið og ætlar Þróttur að halda það í Vestmannaeyjum. Nokkur ánægja var með þessa niðurstöðu öldungaráðs en gerð var skoðunarkönnun á meðan á mótinu stóð um hvar mótið ætti að vera haldið næst. Öldungaráðið og skoðunarkönnunin voru á sama máli hvað þetta varðar og verður mótið því haldið í Vestmannaeyjum að ári, eða frá 5.-7. maí.

 



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning