Öldungamót BLÍ vekur athygli í Evrópu
Á heimasíðu CEV er greint frá mótinu sem verður í Mosfellsbæ um næstu helgi og sagt frá upphafsárum Öldungamótanna og farið yfir þau ár sem mótin sprengdu múra í þátttöku. Þetta mót hefur vaxið uppávið frá upphafi vega, frá árinu 1976 en þá tóku 11 lið þátt en mótið var haldið í Reykjavík fyrstu þrjú árin. Árið 1979 fór mótið fram á Akureyri í umsjón Skautafélags Akureyrar og ári síðar var það haldið á Siglufirði en þá tóku konur þátt í fyrsta sinn.
Í dag hafa konurnar heldur betur vinningin en 65% hlutfall liða á öldungamótinu eru kvennalið. Árið 1988 var fyrsta árið sem kvennalið voru fleiri en karlalið en þá fór mótið fram á Húsavík í umsjá Völsungs, 16 karlalið og 23 kvennalið. Allar götur síðan árið 1992 þegar mótið fór fram á Siglufirði hafa konurnar haft mun fleiri lið en undanfarin ár hafa karlarnir þó verið að sækja í sig veðrið.
Í 35 ára sögu mótsins hefur það oftast verið á Akureyri (7 sinnum) og í Reykjavík (7 sinnum). Mótið hefur verið 4 sinnum á Siglufirði og þrisvar í Kópavogi og á Akranesi. Tvisvar sinnum var mótið haldið á Húsavík og tvisvar í Neskaupstað. Undanfarin fjögur ár hefur mótið verið á nýjum stað, fyrst árið 2006 í Snæfellsbæ, 2007 í Garðabæ, 2008 í Ísafjarðarbæ og 2009 á Seyðisfirði og Egilsstöðum. Þá var mótið einu sinni haldið í Stykkishólmi, árið 1996 en mótshaldari nú árið 2010 hefur einu sinni haldið mótið áður, árið 2002.
Einnig er áhugavert að skoða hvaða félög hafa staðið að mótshaldinu á þessum árum. Blaksamband Íslands er skráður mótshaldari fyrir þrjú fyrstu mótin, 1976, 1977 og 1978. Hyrnan á Siglufirði, Þróttur Reykjavík og Bresi hafa haldið mótið þrisvar sinnum. HK, Þróttur Nes, Völsungur, Óðinn Akureyri, Skautafélag Akureyrar og KA hafa haldið mótið tvisvar sinnum en við þann hóp bætist Afturelding núna árið 2010. Eik, Höfrungar, Súlur Siglufirði, Víkingur, Snæfell, Víkingur/Reynir, Stjarnan, Skellur og Huginn/Höttur hafa haldið mótið 1 sinni í 35 ára sögu mótsins.
BLÍ fagnar því gríðarlega að CEV vekur þessu móti athygli enda er sambandið stolt af því að eiga eitt stærsta mót sem haldið er í flokki fullorðinna hér á landi í öllum íþróttagreinum. Segja má að önnur sérsambönd og íþróttagreinar öfundi BLÍ af mótinu.







