Fréttir

Nýir íslandsmeistarar í strandblaki kvenna

Lilja með hörku skell
Lilja með hörku skell

Um helgina fór fram Fantamótið í strandblaki en þar urðu krýndir nýir íslandsmeistarar í öllum flokkum.

Íslandsmeistarar í flokki kvenna urðu þær Fríða Sigurðardóttir og Birna Baldursdóttir HK. Í karlaflokki endurheimtu þeir titilinn frá 2007 þeir Einar Sigurðsson og Brynjar Pétursson HK.

Í B-flokki kvenna sigruðu þær Ásta Sigrún Gylfadóttir og Ásthildur Gunnarsdóttir HK.

Í unglingaflokki stúlkna urðu Íslandsmeistarar þær Fjóla Rut Svavarsdóttir og Hjördís Eiríksdóttir Þrótti/Stjörnunni, en í piltaflokki bræðurnir Kristján og Hafsteinn Valdimarssynir Hamri.

Einnig voru krýndir stigameistarar sumarsins.

Nánari upplýsingar um mótið og sætaskipan er að finna á www.strandblak.is



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning