Mikasadeildin í blaki
Almennt - laugardagur 28.jan.12 00:39 - Lestrar 126
Tveir leikir fara fram í Mikasadeildinni í blaki í dag, laugardag. Leikið er á Akureyri og í Neskaupstað, bæði í karla- og kvennaflokki.
Þróttur í Neskaupstað fær Aftureldingu í heimsókn fyrir austan. Afturelding er í öðru sæti deildarinnar með 15 stig og getur ekki náð toppsætinu með sigri. Þróttur Nes er í fjórða sæti deildarinnar og vinni liðið Aftureldingu komast þær upp fyrir nöfnurnar úr Þrótti Reykjavík, í þriðja sætið.
Á Akureyri mætast KA og Þróttur Reykjavík í karlaflokki. Liðin hafa leikið tvo leiki það sem af er tímabilinu og Þróttur R unnið þá báða 3-0. Lið Þróttar hefur breyst töluvert síðan fyrir áramót því Will Mazzotti og Mathias Kienzler hafa báðir yfirgefið landið. Þá verður Guðmundur P. Guðmundsson fjarri góðu gamni í leiknum og verða því nýir menn í kantstöðum liðsins.
Íslandsmeistaralið KA hefur ekki unnið leik það sem af er tímabilinu og menn orðnir þyrstir í sigur á þeim bænum. Því er aldrei að vita hvernig leikurinn spilast í dag.







