MIKASADEILDIN af stað
Almennt - miðvikudagur 11.jan.12 13:45 - Lestrar 184
Mikasadeildin í blaki hefst að nýju á morgun eftir hlé vegna hátíðanna. Ýmir og HK mætast í kvennaflokki á fimmtudagskvöld og tveir leikir eru svo á dagskrá um helgina og annar þeirra í beinni á www.sporttv.is.
Lið Ýmis og HK mætast í Fagralundi kl. 19.45 á morgun fimmtudag. HK er á toppi Mikasadeildarinnar með 4ra stiga forskot og gæti styrkt stöðu sína með sigri í leiknum. Ýmir er í fjórða sæti og gæti með sigri náð Þrótti R að stigum sem situr í þriðja sæti deildarinnar.
Á föstudag mætast liðin í 2. og 3. sæti deildarinnar, Afturelding og Þróttur Reykjavík. Aðeins er 1 stig sem skilur liðin að og því skiptir þessi leikur miklu máli fyrir bæði lið. Leikurinn fer fram í Íþróttamiðstöðinni að Varmá á Mosfellsbæ og hefst kl. 19.00 en fyrir þá sem ekki komast er hann í beinni útsendingu á www.sporttv.is.
Á laugardag mætast svo botnliðin í deildinni, Þróttur Nes og KA. Leikurinn fer fram á Akureyri og hefst kl. 14.00. Þróttur Nes gæti híft sig upp í 4. sæti deildarinnar með sigri í leiknum.
Seinni hluti deildarkeppninnar hefst í öllum deildum í þessari viku en lokaumferðir verða í kringum 31. mars 2012. Allar upplýsingar má finna á www.blak.is undir Íslandsmót 2011-2012 en þar má auðveldlega fletta upp stöðu og úrslitum í einstökum deildum.







