Fréttir

Mikasadeild kvenna: Ýmir 1-3 HK

HK vann Ými í fyrsta leik ársins í Mikasadeild kvenna, 1-3. Berglind Gígja og Fríða fóru fyrir lið HK í leiknum, skoruðu jafnmörg stig eða 12 talsins.

HK styrkti stöðu sína á toppi Mikasadeildar kvenna þegar liðið sigraði Ými í kvöld og er HK nú með 21 stig eftir 7 leiki og ekki tapað stigi ennþá. HK fór létt með fyrstu hrinu leiksins og vann hana 25-12. Í annarri hrinunni spýtti Ýmir í með góðri pressu í uppgjöfum og kláruðu sóknir sínar vel. Undir lokin virtist allt sem hrinan væri unnin hjá Ými, staðan orðin 18 en HK skoraði 19. stigið og Fríða fór í uppgjöf. Með mikilli pressu í uppgjöfum og æsispennandi lotum náði HK að jafna leikinn 24-24 og komast yfir 25-24. Ýmir tók þó þrjú síðustu stigin og vann hrinuna 27-25.
 
Leikurinn var nokkuð jafnt eftir þetta en HK liðið örlítið sprækara en liðið vann þriðju hrinuna 25-19 og fjórðu hrinuna 25-18 og þar með leikinn 3-1.
 
Stigahæstar í liði HK voru þær Berglind Gígja Jónsdóttir og Fríða Sigurðardóttir með 12 stig hvor. Í liði Ýmis var Jóhanna Jóhannsdóttir með 11 stig og Birna Hallsdóttir var með 9 stig.
 
Á morgun eigast við liðin í 2. og 3. sæti Mikasadeildarinnar, Afturelding og Þróttur Reykjavík. Leikurinn hefst kl. 19.00 að Varmá í Mosfellsbæ og verður hann sýndur beint á www.sporttv.is  


Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning