Mikasadeild kvenna: Ýmir - Þróttur R
Almennt - föstudagur 3.feb.12 16:08 - Lestrar 78
Einn leikur fer fram í Mikasadeild kvenna um helgina þegar Ýmir og Þróttur R mætast í Fagralundi. Mikið er í húfi hjá báðum liðum þannig að búist er við hörkuleik.
Ýmir er í 5. sæti deildarinnar með 9 stig, jafnmörg stig og Þróttur N (4. sæti) og Stjarnan (6. sæti). Þróttur Reykjavík er í 3. sæti deildarinnar með 11 stig og getur með sigri styrkt stöðu sína töluvert. Ýmir kæmist upp fyrir Þrótt Reykjavík, í 3. sætið með því að vinna 3-0 eða 3-1 en fyrri leikur liðanna fór þannig að Ýmir vann 3-1 í nóvember.
Leikurinn í Fagralundi á morgun hefst kl. 14.00.







