Mikasadeild kvenna: Stjarnan 3-2 Ýmir
Almennt - þriðjudagur 17.jan.12 22:27 - Lestrar 178
Stjarnan vann Ými í Mikasadeild kvenna í kvöld í hörkuleik, 3-2 í Ásgarði í Garðabæ.
Strax frá fyrstu hrinu virtist leikurinn ætla að verða spennandi. Ýmir knúði fram sigur í fyrstu hrinunni 27-25 en Stjarnan svaraði fyrir sig með sigri í þeirri næstu 25-20. Ýmir vann þriðju hrinu 25-20 og virtist hafa leikinn í hendi sér. Stjarnan spýtti þá í lófana og vann fjórðu hrinuna 25-15 og tryggði sér stig.
Í oddahrinunni var aldrei spurning að heimaliðið myndi sigra en Stjarnan tók hana 15-8 og þar með leikinn 3-2.
Þetta var mikilvægur sigur fyrir Stjörnuna en fyrri leik liðanna í deildinni vann Ýmir 3-0. Stjarnan komst upp fyrir Ými með sigrinum, í fimmta sæti deildarinnar en liðin hafa jafnmörg stig og Þróttur Nes sem er í fjórða sæti, öll liðin með 9 stig.
Það er því ljóst að mikil barátta verður um hið mikilvæga fjórða sæti í seinni hluta Mikasadeildarinnar sem er núna komin af stað. Næsta umferð í Mikasadeild kvenna er um næstu mánaðarmót. Þá eru á dagskrá áhugaverðir leikir. Afturelding heimsækir Þrótt Nes þann 28. janúar, HK mætir Stjörnunni 2. febrúar og þann 4. febrúar verður leikur Ýmis og Þróttar R.







