Fréttir

Mikasadeild kvenna: KA 0-3 Þróttur Nes

Þróttur Nes gerði góða ferð til Akureyrar í dag þar sem liðið sigraði 3-0 sigur gegn KA. Þróttur Nes tyllti sér því í fjórða sæti deildarinnar með 9 stig, stigi fyrir ofan Ými í fimmta sætin 


Þróttur Nes vann fyrstu hrinu leiksins 25-13. Meira líf var í leiknum í annarri hrinunni en gestirnir höfðu betur 25-17. Þriðja hrina leiksins fór 25-12 fyrir Þrótt Nes og þær því með unnin leik 3-0 og þrjú stig í höfn hjá Íslandsmeisturunum.
 
Stigahæstar í liði gestanna voru Hulda Elma Eysteinsdóttir með 13 stig og Helena Kristín Gunnarsdóttir með 11 stig. Í liði KA var Auður Anna Jónsdóttir stigahæst með 14 stig og Ásta Harðardóttir kom næst með 5 stig.
 
Næsti leikur í Mikasadeild kvenna er leikur Stjörnunnar og Ýmis á þriðjudaginn kemur kl. 19.30 í Ásgarði í Garðabæ. 


Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning