Mikasadeild kvenna: HK-Stjarnan
Almennt - þriðjudagur 31.jan.12 11:16 - Lestrar 103
Í kvöld fer fram einn leikur í Mikasadeild kvenna þegar HK og Stjarnan mætast í Fagralundi í Kópavogi. Leikurinn hefst kl. 18.00.
Leikurinn var færður fram um tvo daga að beiðni félaganna - en hann var upphaflega settur á fimmtudag í Fagralundi.
Liðin spiluðu síðast í Ásgarði þar sem HK hafði betur í hörkuleik, 3-1. Verður því spennandi að sjá hvernig leikur liðanna fer í kvöld.
Hvetjum alla til að mæta í Fagralund og sjá efsta liðið í deildinni (HK) spila við liðið í fjórða sæti (Stjarnan).







