Mikasadeild kvenna: Afturelding 3-0 Þróttur R
Almennt - föstudagur 13.jan.12 22:57 - Lestrar 178

Fjóla og Perla berjast um bolta
Leikurinn stóð yfir í rúma klukkustund en hrinurnar fóru 25-13, 25-19 og 25-17. Lið Aftureldingar gefur þar með ekkert eftir í baráttunni um titil á þessu ári, eru í öðru sæti með 15 stig. Lið Þróttar R heldur þriðja sæti deildarinnar þar sem Ýmir tapaði í gær fyrir HK en fjögur efstu liðin hafa nú öll leikið 7 leiki.
Stigahæstar í leiknum í kvöld voru Miglena Apostolova með 13 stig en Zaharina Filipova og Velina Apostolova gerðu báðar 12 stig. Í liði Þróttar Reykjavíkur var Fjóla Rut Svavarsdóttir með 14 stig og Valdís Lilja Andrésdóttir með 5 stig.
Næsti leikur í Mikasadeild kvenna er norðan heiða á morgun laugardag. Þangað mætir Þróttur Nes og mætir KA en leikurinn hefst kl. 14.00 í KA heimilinu. Þróttur Nes gæti komist upp í fjórða sæti deildarinnar með sigri en það sæti gefur sæti í úrslitakeppninni í vor.







