MIKASADEILD karla hefst að nýju
Almennt - miðvikudagur 25.jan.12 19:16 - Lestrar 93
Á morgun hefst Mikasadeild karla að nýju með leik HK og Stjörnunnar. HK er á toppi deildarinnar með 13 stig fyrir síðari hluta deildarinnar.
Leikur HK og Stjörnunnar verður í Fagralundi kl. 19.45, á heimavelli HK. Stjarnan er einu stig á eftir HK í öðru sæti deildarinnar og er því búist við hörkuleik.
Um helgina mætast svo KA og Þróttur Reykjavík á Akureyri og hefst sá leikur kl. 14.00 á laugardag.
Öll lið verða breytt að einhverju leyti þegar deildin hefst að nýju. Stigahæsti leikmaður hingað til í deildinni, Will Mazzotti hjá Þrótti Reykjavík spilar ekki meira með liðinu á þessari leiktíð. Orri Þór Jónsson hjá HK er fluttur til Bandaríkjanna og þá verður Jóhann Már, uppspilari Stjörnunnar hugsanlega ekki meira með þeim. Því er líklegt að deildin verði áfram spennandi en aðeins tvö stig skilja þrjú efstu stigin að og því getur allt gerst í seinni hlutanum.







