Mikasadeild karla: Þróttur R 1-3 HK
Almennt - þriðjudagur 7.feb.12 21:23 - Lestrar 160
HK vann Þrótt Reykjavík 3-1 á útivelli í kvöld í Mikasadeild karla. Þróttarar unnu fyrstu hrinuna en síðan ekki söguna meir. Með sigrinum komst HK á topp Mikasadeildarinnar.
Þróttarar komu einbeittir til leiks í kvöld eftir tap fyrir norðan um daginn. Voru heimamenn yfir nánast alla fyrstu hrinuna þó með litlum mun allt þar til í lokin. Þróttur vann hrinuna 25-22.
HK tapaði fyrir Stjörnunni 3-1 um daginn og ætluðu sér sigur í þessum leik, enda hafa þeir ekki tapað fyrir Þrótti í vetur. HK gjörsigraði Þrótt í annarri hrinunni 25-13 og jöfnuðu leikinn. Þriðja hrinan einkenndist af baráttu liðanna. Jafnt var til að byrja með en HK seig fram úr um hana miðja og héldu sínu forskoti. HK vann hrinu 3 25-20.
Fjórða hrinan var góð hjá HK. Lánleysið var algjört hjá Þrótti og lítið gekk upp sóknarlega á meðan allt gekk upp hjá HK. Gestirnir höfðu sigur 25-16 og þar með 3-1 og öll stigin 3 og á toppinn.
Stigahæstu leikmenn voru Einar Sigurðsson með 19 stig fyrir HK en Alexander Stefánsson og Brynjar Pétursson skoruðu 16 stig. Í liði Þróttar var Fannar Grétarsson með 15 stig, Andris Orlovs með 12 stig og Guðmundur P. Guðmundsson með 11 stig.
HK er á toppi deildarinnar með 16 stig, stigi á undan Stjörnunni í öðru sætinu. Þróttur er í þriðja sæti með 11 stig og KA á botninum með 3 stig.
Næsti leikur í Mikasadeild karla er 21. febrúar en um næstu helgi er önnur undankeppni í Bikarkeppni BLÍ á Akureyri. Þar verða Stjarnan, KA, Þróttur Nes, Fylkir og UMFG sem keppa um tvö sæti í undanúrslitum. Í kvenna eru það Þróttur R, Stjarnan, Ýmir, Eik, KA og HK sem keppa um tvö sæti í undanúrslitum. Undankeppni 2 fer fram í Íþróttahöllinni á Akureyri og hefst á föstudagskvöld.







