Fréttir

Mikasadeild karla: Þróttur R 3-1 Stjarnan

Einn leikur fór fram í MIKASADEILD karla í kvöld þegar Þróttur fékkr Stjörnuna í heimsókn. Þróttur fór með sigur í leiknum og fékk þrjú stig í hús.

Liðin mættust í Ásgarði í október og höfðu heimamenn í Stjörnunni betur þá í hörkuleik 3-2. Í kvöld var spennustigið hátt fyrir leik og í fyrstu hrinu var jafnræði á með liðunum í upphafi. Undir miðja hrinuna drógust Stjörnumenn aftur úr og nýtti lið Þróttar sér það og landaði góðum sigri 25-19. Önnur hrinan var keimlík þeirri fyrstu. Stjörnumenn héldu í við Þrótt þangað til í stöðunni 17-15 og tóku gestirnir þá leikhlé. Eftir það leikhlé var ekki aftur snúið fyrir Þrótt og vann liðið sigur í hrinunni 25-19.
 
Þriðja hrinan var ójöfn. Frábær leikur Stjörnunnar í hrinunni skilaði þeim forskoti sem Þróttarar áttu erfitt með að brúa. Hrinan endaði 17-25 Stjörnunni í vil, sem eigði von í leiknum.
 
Jafnt var í upphafi fjórðu hrinu en sóknaraðgerðir heimamanna gengu flestar upp og komst liðið í forskot 11-7 og 14-8. Ekki var aftur snúið fyrir Þrótt sem sigldi öruggum sigri í höfn 25-17 og því leikinn 3-1. Fyrsta tap Stjörnumanna staðreynd á tímabilinu en liðið heldur þó enn í stöðu sína í Mikasadeildinni, í öðru sæti með 12 stig.
 
Stigahæstu leikmenn í kvöld voru Will Mazzotti með 28 stig fyrir Þrótt Reykjavík en Fannar Grétarsson skoraði 12 stig. Í liði Stjörnunnar var Róbert Karl Hlöðversson stigahæstur með 17 stig og Hilmar Sigurjónsson skoraði 11 stig.
 
Þróttur styrkti stöðu sína í þriðja sætinu í kvöld og er nú með 11 stig, tveimur stigum frá toppliði HK. Liðin fara nú í jólafrí og hefst deildin að nýju um miðjan janúar.


Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning