Mikasadeild karla: HK 1 - 3 Stjarnan
Almennt - fimmtudagur 26.jan.12 23:05 - Lestrar 137
Stjarnan komst á topp Mikasadeildar karla í kvöld með góðum útisigri á HK, 3-1.
Stjörnumenn mættu einbeittir til leiks í Fagralund og unnu fyrstu hrinuna 25-18. Allt virtist stefna í spennandi leik þegar HK ingar jöfnuðu metin í hrinum með sigri í annarri hrinunni 25-18. Það kom á daginn og þriðja hrinan endaði öll í hnút. Stjarnan hafði þó betur í lokin, 26-24 og með aðra höndina á leiknum.
Eitthvað virtist þriðja hrinan sitja lengur í HK því liðið beið lægri hlut fyrir frískum Stjörnumönnum 25-17 í fjórðu hrinunni og unnu Garðbæingar því mikilvægan sigur í baráttunni um Mikasadeildina 2012.
Stigahæstu leikmenn voru Hilmar Sigurjónsson með 14 stig fyrir Stjörnuna og Róbert Karl Hlöðversson var með 13 stig. Í liði HK voru það Einar Sigurðsson og Brynjar Pétursson sem skoruðu mest, 14 stig hvor.
Stjarnan komst á topp Mikasadeildarinnar og er nú með 15 stig eftir 7 leiki. HK er í öðru sæti með 13 stig og Þróttur í því þriðja með 11 stig, en á leik til góða gegn KA á laugardag.







