Fréttir

Mikasa deild kvenna: Ýmir færist upp töfluna

Einn leikur fór fram í Mikasa deild kvenna í kvöld þegar Ýmir tók á móti Fylki í Digranesi. Leikurinn var hátt í tvær klukkustundir og endaði með 3-1 sigri Ýmis.

 

Fylkisliðið hefur átt gott tímabil það sem af er og virtist ætla að halda því áfram í kvöld miðað við byrjunina í leiknum. Í fyrsta tæknileikhléi var staðan 3-8, Fylki í vil. Ýmisliðið var greinilega ekki komið í gang en fljótt varð breyting þar á því á einu augabragði breyttu þær stöðunni úr 4-8 í 17-8 í fyrstu hrinunni. Fylkir komst þó inn í hrinuna aftur og náði að jafna leikinn 24-24 en Ýmir átti svo lokaorðið og vann fyrstu hrinu 26-24. Áfram héldu Ýmiskonur að spila vel og nýttu sér meðbyrinn og unnu aðra hrinuna nokkuð auðveldlega 25-19. Fylkir átti góða byrjun í þriðju hrinu og héldu forystu út hrinuna sem endaði 17-25.

Fjórða hrinan var einkennileg að því leyti að Fylkir var með forystu alla hrinuna. Í blálokin náði Ýmir að jafna leikinn og virtist sem góð spilamennska Fylkisliðsins hafði hrunið. Fylkir varð að játa sig sigrað 25-22 gegn Ými í fjórðu hrinu og fögnuðu heimastúlkur vel að lokum.

Stigahæstu leikmenn Ýmis voru Guðný Laxdal Helgadóttir með 11 stig, Dögg Mósesdóttir og Inga Lillý Brynjólfsdóttir voru með 10 stig. Í liði Fylkis var Hildur Inga Þorsteinsdóttir að spila best og skoraði hún 11 stig. Hildur Inga þurfti þó að fara meidd að velli í lokahrinunni eftir að brotnað hafði tönn hjá henni eftir samstuð við meðspilara. Rasa Ratkute skoraði 10 stig í liði Fylkis og var næststigahæst.

Ýmir skaust nú upp fyrir Þrótt Reykjavík í 5. sætið með 6 stig en Fylkisliðið er áfram í þriðja sæti deildarinnar með 12 stig.

Á morgun miðvikudag er leikur Stjörnunnar og HK í Mikasadeild karla. Leikurinn hefst kl. 20.00 í Ásgarði í Garðabæ.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning