Fréttir

Mikasa deild kvenna: Stjarnan međ sinn fyrsta sigur

Stjarnan sigraði Þrótt Reykjavík í kvöld í leik í Mikasa deild kvenna, 3-0 á heimavelli í Ásgarði í Garðabæ. Stjarnan situr þó enn á botni deildarinnar með 2 stig og Þróttur í því fimmta með 4 stig.

 

Sigurinn í kvöld var fyrsti sigur kvennaliðs Stjörnunnar í efstu deild í blaki. Stjörnuliðið lék vel í leiknum í kvöld gegn lánlausu liði Þróttar sem hefur átt betri daga. Stjarnan vann fyrstu hrinuna örugglega 25-16. Þróttarakonur komu ákveðnar til leiks í annarri hrinunni og voru yfir lengst af. Stjarnan barðist af krafti með Lilju Jónsdóttur, fyrrverandi leikmann Þróttar, í fararbroddi, komst inn í hrinuna og komst yfir í fyrsta skipti í stöðunni 16-15. Jafnt var til loka hrinunnar sem endaði 25-22, Stjörnunni í vil. Þriðja hrinan endaði einnig 25-22.

Stigahæst í liði var Lilja Jónsdóttir með 13 stig en fast á hæla hennar kom hin unga og efnilega Hjördís Eiríksdóttir með 10 stig. Í liði Þróttar var Hildigunnur Magnúsdóttir stigahæst með 12 stig og Valdís Lilja Andrésdóttir var með 8 stig.

Um helgina verður leikið í Mikasa deildinni en bæði KA liðin taka á móti Þrótti Reykjavík á laugardag.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning