Fréttir

Mikasa deild kvenna: HK vann Stjörnuna

HK bar sigur úr bítum í leik gegn Stjörnunni sem fram fór í Fagralundi í gærkvöld. Leikurinn endaði 3-1, HK í vil.


HK byrjaði leikinn vel og vann fyrstu hrinuna auðveldlega 25-8. Stjarnan beit frá sér í annarri hrinunni en HK vann hana engu að síður 25-20. Í þriðju hrinunni var jafnt á öllum tölum og náðu Stjörnustúlkur að landa sigri í henni 23-25. HK vann svo fjórðu hrinuna 25-20.

HK er í efsta sæti deildarinnar með 16 stig eftir 9 leiki en Stjarnan situr á botninum með aðeins 2 stig. Þróttur Nes er í öðru sæti með 12 stig en liðið er fyrir ofan Fylki og KA sem einnig eru með 12 stig.

Næsti leikur í Mikasadeild kvenna er í kvöld þegar Ýmir tekur á móti Fylki í Digranesi. Leikurinn hefst kl. 18.10.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning