Fréttir

Mikasa deild karla: Stjarnan vann Þrótt

Einn leikur fór fram í Mikasa deild karla í kvöld þegar Stjarnan tók á móti Þrótti Reykjavík í Ásgarði í Garðabæ. Leikurinn stóð yfir í tvo klukkutíma og endaði með sigri Stjörnunnar í oddahrinu.

 

Þróttarar komu einbeittir til leiks eftir arfaslakan leik gegn HK um daginn. Í upphafi var greinilegt að liðið hafði bætt sinn leik og var yfir alla hrinuna. Þróttur vann fyrstu hrinuna 20-25. Stjörnumenn fóru í gang í annarri hrinu og slökktu á Þrótti í einni stöðunni og skoruðu sjö stig í röð. Segja má að hrinan hafi unnist á þeim kafla þar sem allt gekk upp hjá Stjörnunni í hávörninni og skiluðu góðum boltum í sókninni. Stjarnan vann aðra hrinu 25-18. Stjörnumenn héldu áfram að hafa yfirhöndina í þriðju hrinunni og komust strax í gott forskot. Voru yfir í seinna tæknileikhléinu 16-9 og fóru þá að skipta inn á yngri leikmönnum liðsins. Gengu Þróttarar á lagið og komust inn í hrinuna hægt og bítandi og unnu hrinuna með baráttu og seiglu, 24-26.

Þróttarar byrjuðu fjórðu hrinu betur og virtust ætla að landa 3-1 sigri. Stjörnumenn voru þó ekki lengi að jafna leikinn og var jafnræði á með liðunum þar til Stjarnan komst í 20-18. Þróttur jafnaði leikinn aftur en Stjarnan kláraði svo hrinuna 25-21 með frábærum sóknarleik og sterkum uppgjöfum sem móttaka Þróttar réð ekki við. Oddahrinan var jöfn og var staðan 8-6, Stjörnunni í vil þegar skipt var um helminga. Þróttur náði að jafna og komast yfir 8-10, en þá komu fimm stig í röð frá Stjörnunni sem breytti stöðunni í 13-10. Stjarnan kláraði hrinuna 15-12 og vann þar með góðan sigur á Þrótti, 3-2.

Stigahæstu leikmenn Stjörnunnar voru Emil Gunnarsson með 23 stig og Róbert Karl Hlöðversson með 22 stig. Í liði Þróttar var Michael Overhage stigahæstur með 19 stig og Aron Bjarnason með 17 stig.

Staðan í deildinni er þannig að KA er efst með 16 stig og HK þar á eftir með 14 stig. Stjarnan bætti stöðu sína gagnvart HK og er nú með 10 stig og gæti með sigri í báðum leikjunum sem eftir eru jafnað HK en liðin spila innbyrðis í lokaleik HK á laugardaginn kemur.



Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning