Fréttir

Marienlyst varði bikarmeistaratitilinn

Þeir bræður með bikarinn
Þeir bræður með bikarinn
Marienlyst, lið Hafsteins og Kristjáns Valdimarssona, varði bikarmeistaratitil sinn í Danmörku í gær. Liðið hafði betur gegn Gentofte, 3-1 og hömpuðu tvíburabræðurnir bikarnum og sínum fyrsta stóra titli á ferlinum.

Leikurinn í gær var sýndur í beinni útsendingu á netinu. Hafsteinn Valdimarsson var í byrjunarliði Marienlyst í leiknum en liðið vann fyrstu hrinu nokkuð örugglega 25-17. Gentofte beit frá sér með glæsilegum leik í annarri hrinu þar sem hinn gamalreyndi leikmaður Jonas Napier kom inn til að bjarga málunum. Gentofte vann hrinuna 21-25 og stefndi allt í spennandi leik. 
 
Marienlyst kom þá til baka með stöðugleikann sem einkennir þeirra lið. Jafnt og þétt náði liðið yfirhöndinni í þriðju hrinunni og vann hana 25-22. Í fjórðu hrinunni var ekkert sem stoppaði liðið frá Odense og vann Marienlyst hrinuna 25-18 og þar með bikarúrslitaleikinn 3-1.
 
Hafsteinn Valdimarsson spilaði nánast allan leikinn í gær en Kristján kom lítið við sögu. Hafsteinn átti fínan leik í sókn og átti nokkrar hávarnir sem skiptu máli. 
 
Þeir bræður unnu þar með sinn fyrsta stóra titil á ferlinum, bikarmeistaratitillinn 2012 í Danmörku.
 
Ekki gafst mikið rými til að fagna titlinum því samkvæmt þjálfara liðsins var æfing strax kl. 08.00 í morgun því liðið fer í úrslitakeppni NEVZA meistaramóts félagsliða um næstu helgi í Kaupmannahöfn.
 
Blaksamband Íslands óskar þeim bræðrum til hamingju með titilinn. 


Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning