Lokaumferðir í MIKASA deildunum um helgina
Alls eru 5 leikir á dagskrá í Mikasa deildunum í blaki um helgina. KA getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn í blaki karla með því að vinna annan af sínum leikjum um helgina. Þá eru spennandi leikir um silfur og brons í Mikasadeild kvenna.
Blakveislan um helgina hefst á föstudagskvöldið með tveimur leikjum. Karlalið Þróttar fær KA í heimsókn í KHÍ og hefst sá leikur kl. 19.30. Takist KA mönnum að sigra leikinn fá þeir afhentan deildarmeistaratitilinn í blaki karla 2010 að leik loknum. Fylkir fær lið Þróttar Nes í heimsókn en þessi lið berjast um annað sætið líkt og lið KA. Leikurinn hefst kl. 20.10 í Fylkishöllinni.
Á laugardag mætir Þróttur Nes svo liði Stjörnunnar í Garðabæ. Leikurinn hefst kl. 12.00 í Ásgarði og fari svo að Þróttur Nes vinni báða sína leiki um helgina tryggja þær sér silfurverðlaun í Mikasadeild kvenna. Síðar um daginn mætast Stjarnan og KA í karlaflokki og sá leikur hefst kl. 16.00 í Ásgarði í Garðabæ.
Á sunnudag fara nýbakaðir deildarmeistarar HK norður yfir heiðar og mætir þar kvennaliði KA. KA liðið verður að treysta á önnur úrslit ætli þær sér að ná silfrinu og verða að vinna leikinn til að gulltryggja sér bronsið a.m.k. Leikurinn hefst kl. 14.00 í KA heimilinu.







