Fréttir

Lið Birtu Björnsdóttur í 2. sæti í NEVZA keppninni

Æsispennandi móti í NEVZA keppni félagsliða í kvennaflokki lauk í gær. Oslo Volley vann mótið og varð Norðurlandameistari félagsliða. Stod Volley, lið Birtu Björnsdóttur varð í öðru öðru sæti.

Oslo Volley byrjaði mótið á tapi gegn Holte IF frá Danmörku 3-2 en á laugardag vann liðið Stod Volley 3-1. Í gær gjörsigraði Oslo Volley svo danska liðið Bröndby og tryggði sér þannig Norðurlandameistaratitilinn.
 
Stod Volley vann bæði Holte IF og Bröndby í mótinu og endaði með 5 stig líkt og Oslo Volley en þær vinna á betra hrinuhlutfalli.
 
Holte IF endaði í þriðja sætinu í NEVZA keppninni og Bröndby í því fjórða.
 
Blaksamband Íslands óskar Birtu Björnsdóttur og félögum hennar í Stod Volley til hamingju með árangurinn. 


Framsetning efnis

  • A-
  • A+
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning